þriðjudagur, september 11, 2007

Helgin í Grimsby




Fórum um helgina til Grismby, pabbi og Iðunn systir með Stebba sinn og Nonna og Svövu voru þar í heimsókn. Við skruppum til Cleethorpe sem er nú eiginlega samvaxið Grimsby fórum þar á pöbbinn í leikjasali og á austulenskt hlaðborð, svakalega fínt. Um kvöldið var kjaftað ógurlega, og dansað við Gypsy kings, svo á einhvern óskiljanlegan hátt endaði allt í vatnsslag og það á að vera mér að kenna en getur ekki staðist því ég geri aldrei neitt sem ekki má, kannski betra að tala við þann sem vissi hvar slangan var geymd ;)
Á sunnudaginn dröslaði Iðunn Stebba í búðir og fataði hann upp fyrir veturinn en ég og Gunnar aðstoðuðum litlu hjónin við að útbúa hvílíka veislu ala Jamie Oliver. Lamb og rif og kjúklingur ( aldrei lítill matur þegar Hulda er við stjórn) fór í frábæra marineringu og allt á grillið. Meiri myndir á picasa). Pabbi og systkini Les mættu með sitt fólk í herlegheitin.

Núna er ég heima með hálsbólgu og beinverki oj bara, held að pabbi og Iðunn hafi borið þetta í mig, sendi Gunnar í búðina eftir c-vítamíni og sólhatti. hóst hóst kv. Svava

4 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Nammi namm sá einmitt þennan þátt með Jamie, verða að prófa herlegheitin um helgina. En held ég hafi bara eina gerð af kjöti. Góðan bata ; )

Nafnlaus sagði...

Láttu þér batna góða mín. Ég verð í Bracknell um helgina, mest í búðunum þar í kring. Kveðja Ólöf

Nafnlaus sagði...

Ég sé ekki myndirnar...

Nafnlaus sagði...

Sorry, fann þær - var á röngum stað - engin smá veisla :)