Hulda og Les í heimsóknÞau komu í gær og við fórum í IKEA fylltum bílinn af einu og öðru og skoðuðum skápa en þá vantar hér í kotið hjá okkur. Um kvöldið fórum við niður fjallið eins og Hulda sagði niður á indverska veitingastaðinn sem við Gunnar vorum svo ánægð með hér um páskana. Hann heitir
Sheesh Mahal og er ódýr en alveg frábærlega góður, persónuleg þjónusta, þjónninn sem við grunuðum um að vera eigandann snerist í kringum Bergþóru að láta hana fá mat sem hún myndi borða og gaf sér góðan tíma við að aðstoða okkur við að panta.
Þegar við vorum að labba heim var allt í sniglum bæði með húsið á bakinu og líka stórum hlussum sem Les kallar slugs, þeir skríða svona út um allt þegar það rignir og já það er ennþá rigning og ég heyrði í þrumum áðan, vona að þessu fari nú að ljúka allavega spáir góðu á morgun en svo á aftur að fara að rigna.
Í dag bakaði ég lummur en í gær vöfflur nóg tími í alls konar dútl þessa dagana, keypti svo eitthvað sem kallað er double cream og þeytti hann svo úr varð hnausþykkt krem, en á víst að kaupa whipping cream, þarf að læra á hvaða vörur henta manni en þó þetta séu lík lönd er sumt öðruvísi. Það sem við höfum rekist á er að ekki er til rúgbrauð, remúlaði og sætt sinnep en á móti er til sægur af öðru sem við vinnum hörðum höndum við að prufa :)
Eins gott að Huldu finnst gaman í búðum því í dag fór hún með okkur í Tesco sem er risastórmarkaður með öllu sem nöfnum tjáir að nefna keyptum örbylgjuofn, símanúmer, Harry Potter, hreingerningarvörur, mjólk, jarðaber, boltaleik, sherry, súkkulaði, lauk, og einhverja hundrað hluti í viðbót ;)
Takk fyrir heimsóknina Hulda og Les og Fudge.