þriðjudagur, janúar 08, 2008

Við erum komin aftur til Leeds, rosalega skrýtin tilfinning að vera að fara til útlanda og vera að fara heim til sín. Ég var svo rugluð þegar Bergþóra sagði að við værum örugglega komin í flugvélinni, hún sæi svo mikið af ljósum að það datt´upp úr mér "þetta er ábyggilega Reykjavík". En maðnni á líður víst best heima hjá sér í með sína sæng og sitt drasl. Við höfðum það samt alveg svakalega gott allstaðar sem við komum og þökkum öllum sem buðu okkur í mat, og leyfðu okkur að gista, við eru vel haldin og sæl með þessa för. Að öðrum ólöstuðum þá fá Jón og Gerður þúsund kossa fyrir gistingu, bílalán og umburðarlyndi Takk Takk.

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Hæ hæ og takk fyrir síðast, mér fansnt svooo gaman að sjá þig geislandi á nýju ári :) Hafið það gott og gangi þér vel í náminu. Bestu kveðjur Steinþóra