fimmtudagur, nóvember 08, 2007
miðvikudagur, október 31, 2007

sunnudagur, október 28, 2007
Fórum í dag á bændamarkað í Otley, rétt hjá Leeds
markaðurinn opnar 6 og er búinn fljótlega upp úr hádegi. En bændamarkaðurinn var frábær, í litlum svefnbæ í útjaðri Leeds. Keyptum lamakjöt og grænmeti og bacon og hunang allt beint af bóndanum og á fínu verði. Hittum líka bæjarkallarann, þennan á myndinni. :)þriðjudagur, október 23, 2007
Veit ekki með aðra sem hafa búið erlendir en ég fæ reglulega þá tilfinningu að ég sé stödd í sjónvarpsþætti eða draumi .... Svo slæmt að í dag bjóst ég alveg eins við að kennarinn myndi á hverri stundu svissa yfir í íslensku. En þetta er víst raunveruleikinn.
Fer loks í prufu hjá Leeds Festivel Chorus á morgun, wish me luck !
mánudagur, október 22, 2007
mánudagur, október 15, 2007
laugardagur, október 13, 2007
Ég óska öllum afmælisbörnum mánaðarins til hamingju. Október er mikill afmælismánuður í minni fjölskyldu. Stelpurnar mínar, Kristín Hrönn og Lilja Björg eru vogir og mamma einnig, eins má telja Kötu frænku sem talaði stöðugt um það þegar við vorum krakkar að hún væri sko 2 dögum “eldri” en undirritaður. Mamma stelpnanna minna er vog , Guðlaugur frændi minn á sama afmælisdag og ég og Kristín Hrönn sama afmælisdag og bróðir hennar mömmu, Þórhallur heitinn afi Guðlaugs og svona mætti lengi telja.

Við fórum til Huldu systur Svövu minnar um síðustu helgi, hún á afmæli 6 október , og átti við góða stund með henni og Les. Fórum út að borða á mjög fínan Ítalskan veitingastað og vorum hjá þeim í góðu yfirlæti eins og ávalt þegar við förum til Grimsby.
Ég var vakinn upp með afmælissöng ,kortum og pökkum í morgun af Svövu og Bergþóru Sól og það er nú ekkert leiðinlegt fyrir utan að fá morgunmat í rúmið, TAKK.;)
Við fórum í gærkveldi niður í bæ vegna þess að það var ljósanótt hér í Leeds og töluðvert um að vera, en fyrst fórum við á ágætan veitingastað http://www.pizzaexpress.com/mainm.htm og ég
fékk mér Pansetta Pomodoro http://www.pizzaexpress.com/mainmenu.htm sem á að vera svona Pizza eins og þær voru upphaflega gerðar í Róm, og miðað við það að ég er nú enginn sérstakur aðdáandi Pizzunnar þá var þetta mjög gott, þannig að það var nú ekki gæfuríkt spor að Dominosvæða þessa tegund matar. Við fengum okkur svo ekta ítalskan ís í eftirrétt.Þegar við komum út, þá lentum við í göngu stórs hóps, "fórum svona með flæðinu", og enduðum á einhverskonar leik/fimleikasýningu fyrir utan Royal Armouries http://www.royalarmouries.org/ og eftir þá
sýningu fórum við inn í safnið sem er alskonar svona dót frá mismunandi stríðstímum, mjög stórt og mikið, við Svava sögðum í kór “Hingað skulum við fara með Óðinn þegar hann kemur í heimsókn”Það er búið að vera mjög gott veður undanfarið og gærkveldið toppaði nú allt saman með 19 gráðu hita og sól, þannig að í gærkveldi var tilfinningin sú sama og að ganga um í einhverri borg við Miðjarðarhafið.
Svava er núna þessa stundina á 3 tíma kóræfingu, þetta er sko alvöru kór sem stúlkan er í.
Svo á að toppa helgina með því að fara á einhvern mjög fínan Indverskan veitingastað í kvöld, já ég veit það er verið að spilla manni, en það er jú líka “BARA GOTT” og eins og Jón hennar Svövu segir “Ég á það skilið”.
Gunnar Halldór
fimmtudagur, október 11, 2007
Fór í jóga, ný stöð svona lítil og heimilisleg svotil í næsta húsi vorum bara 3 í tímanum. Fæ örugglega hressilegar harðsperrur. Líkaði þetta vel og er að hugsa um að fara aftur.
Mér finnst ég vera að drukkna i fólki á leiðinni í og úr skólanum er , líka á göngum skólans, greinilegt að við íslendingar erum ekki nema þrír á ferkílómetra !
þriðjudagur, október 09, 2007
Hitti hana Erlu um daginn sem er líka í University of Leeds, hún sagði mér að það væru nokkrir íslendingar hér. Hún var nýbúin að fara í boð hjá Rory Turk sem er prófessor í íslenskum fræðum og talar íslensku og býður við og við heim þeim íslendingum sem hann veit af hér í Leeds.
Það er komið haust og það er alltaf verið að sópa lauf af gangstéttunum, annars væru þær líklega alltaf sleipar og ógeðlegar.
Bergþóra er farin að æfa kick boxing og fer á skátafundi allt með bekkjarsystur sinni henni Shenell.
Les og les ferlega hægt, alltaf að fletta upp einhverjum orðum, getur einhver sagt mér hvað ontological þýðir í uppeldisfræðilegu samhengi?
Er orðin ferlega flink að hjóla upp brekkur.
Fór í skólaheimsókn um daginn í barnaskóla, var með 8 ára krökkum. Þau vildu vita allt um ísland, hvort við hefðum rafmagn, hvort við hefðum háð einhver stríð, hitastigið, mannfjöldan, hvernig ég hefði komist til íslands. Skólarnir eru í stórum dráttum líkir okkar, allar stofur með smart board svo kennarar hafa dregið mikið úr notkun á kennslubókum. Töluvert meiri agi enda alls konar punkta og verðlaunakerfi í gangi til að verðlauna góða hegðun. Kennararnir kenna bekkjunum sínum öll fög, líka leikfimi og söng, þau eru ekki í smíði, handavinnu, myndmennt né heimilisfræði.
miðvikudagur, október 03, 2007

Haust
Það fór eins og mig grunaðir að það yrði minna um blogg um leið og ég færi að stunda nám :) Ætla samt ekki að hætta og stikla á stóru hér.
Það er komið haust eins og sést á myndinni sem tekin er í Royndhay Park, fórum þangað á laugardaginn.
Svo erum við búin að kveikja á kyndingunni því það er ansi hráslagalegt á kvöldin og morgnana án hennar.
Á sunnudaginn hélt ég að við værum að fara í rannsóknarferð í Outlet Village Junction32 en þá fór Gunnar of all people offari í búðunum og verslaði jakkaföt, úlpu, buxur, skó á sig, úlpu á Bergþóru og ég keypti mér tvö pils, því veðrið hér leyfir svoleiðis fatnað. Fínt að versla þarna og ágæt verð.
Skólinn er frábær, ég er í tveim áföngum + ýmislegt :
- nám og kennsla í náttúrufræði, um hugtakaskilning, kennslu, námsskrár, námsmat o.þ.h.
- Náttúrufræði: tilgangur, stefna og fagleg þróun, segir sig svolítið sjálft.
- svo sit ég áfanga í aðferðafræði og les efnið en þarf ekki að skila verkefnum, ætti að koma góðum notum, en aðferðafræðin úr KHÍ situr ótrúlega vel í mér svo þetta er meira eins og upprifjun enn sem komið er.
- við fáum tíma í tölvunotkun, þar bíð ég eftir kennslu í glósuforriti og gagnavinnslu og gagnagrunnum en sleppi tímum í word og powerpoint.
- tímar í academic writing, ferlega góðir tímar þjálfun í að nota orðaforða sem þarf og uppbyggingu og vinnubrögð við ritun, veitir ekki af þar sem eina námsmatið hér eru ritgerðir.
- umsjónartímar, ekki hægt að kalla þá annað, (personal tutor group) allskonar praktísk atriði og hópefli.
Og bækurnar mínar sjö !!!!!!!!!!!!! bara byrjunin fyrir hvern tíma er bent á sjö aðrar og annað eins af greinum .
Nóg í bili Svava
sunnudagur, september 23, 2007

þriðjudagur, september 18, 2007
Hélt þetta væri bara vaninn hér en sá svo í Yorkshire Evening Post að þeir voru að sitja fyrir skólasystur minni henni Chelsea kærustunni hans Harry prins, hún er víst að taka MA í lögum hér við skólann.
Hausinn að springa af upplýsingum enda ég ekki í neinni æfingu. Búin að hitta suma kennarana sem verða mest með okkur. Þeir hljóma viðræðugóðir og fínir. Enn er verið að innvikla okkur í þetta nýja líf og þjónustan er alveg til fyrirmyndar. Eina sem veldur mér vonbrigðum er að í mínum kúrs þar sem við erum bara 8 enn sem komið er erum við bara tvö með einhverja kennslureynslu, ég hafði einmitt hlakkað til að ræða við kennara víðsvegar frá með allskonar reynslu. Reyndar er meira af reyndum kennurum sem eru að stúdera enskukennlu, sérkennslu og stjórnun en það eru vinsælustu kúrsarnir, við erum 75 sem erum að fara í mastersnám og diplómur við kennaradeildina og örugglega 90 % útlendingar frá öllum heimshornum. Við átta erum frá Íslandi, Indlandi, Oman, Tælandi, Hong Kong, Kenýa, tvær frá Kýpur og svo eiga eftir að bætast við enskir starfandi kennarar. Þeirra vegna eru tímarnir allir seinni hluta dags.
Annars er mest áberandi á háskólasvæðinu allir nýnemarnir og allskyns kynningabásar til að tæla inn á þá allskonar hluti misnauðsynlega, allt frá hugleiðslu, tryggingum, farsímum, lestarkortum og svo í jaðri háskólasvæðisins er verið að dreifa miðum frá næturklúbbum, pöbbum og allskyns skemmtistöðum. Líklega ellimerki hjá mér að strunsa hratt fram hjá því!
sunnudagur, september 16, 2007
Ég nota bara msn núna :) ´Búin að vera að spjalla í dag og í gær við hann Pétur minn, Sollu vinkonu og Möggu systir sem segist ekki munu neitt sakna okkar því hún er alltaf að tala við okkur :) Bara gaman. Nýja msn er betra en það gamla og gengur vel að nota bæði hljóð og mynd þar. Svo er skype líka frábært.
Svava
laugardagur, september 15, 2007
Sumir dagar eru verri en aðrir, við erum öll enn hálfslöpp. Bergþóra veiktist í gær og fór ekki í skólann. Ég fór og var fram eftir degi, stór hluti dagskráinnar var um allskonar aðstoð sem er í boði, námsráðgjöf, heilsugæsla, viðtalsaðstoð. Líka um bókasafnið, tölvukerfið, tungumálamiðstöðina, og skills center. Þannig að það er alveg sama hvort maður stendur á gati í málfræði, ritgerðasmíð, sálarlífinu eða fær kynsjúkdóm, þá er hægt að fá aðstoð.
Annars var allt á móti mér í fyrradag, heimbankinn hjá Barkleys sagði að lykilorðin væru vitlaus, gat ekki borgað leiguna, síðan hjá TV licence (afnotagjaldi sjónvarps) virkaði ekki og svo þegar ég ætlaði að hringja eftir aðstoð virkaði síminn ekki.
Talaði við ennþá fleirra fólk, meiri kínverja, Lýbíu, stelpu frá Íran, einn frá Þýskalandi, merkilegt hvað lítið af þýskunni úr FS situr eftir, eða réttara sagt, ég skil ekki talað mál en skil meira og minna þýsku textana sem ég hef verið að syngja undanfarin ár.
Múslimarnir eru frekar áberandi hérna, sátu ábyggilega 20 í gær í salnum með slæður yfir hárinu og svo fengum við bréf heim með Bergþóru frá skólanum að margir nemendur segðust ætla að fasta núna en að skólanum þætti það helst ungt fyrir 6 ára börn að vera án matar og drykks heilan dag. Held ég geti nú alveg tekið undir það, þau dugðu rétt fram að frímínútum krílin þegar ég var að kenna sex ára.
Í háskólanum er samfélag múslima og aðstaða fyrir þá til bæna en líka kirkja og prestur sem sinnir öllum kirkjum og vinnur í samstarfi við kirkjunar sem eru mýmargar og af öllum gerðum.
Erum búin að taka lífinu með ró í dag og vonum að verða hressari eftir helgi, Bergþóra er drullufúl því það stóð til að fara í bíó en verður að bíða þar til heilsan leyfir.
Svava
fimmtudagur, september 13, 2007
Setti annað myndband af Bergþóru á youtube og einhvað dót hér við hliðina, þarf að læra meira html til að þetta verði flott, en ef þið klikkið á þetta kemur opnast annar gluggi með youtube og allt myndbandið sést.
kv. Svava
miðvikudagur, september 12, 2007
Er búin að snýta af mér nefið og hnerra með látum.
Fer í skólann á morgun, þá eru dagar fyrir alþjóðlega nemendur, vona að ég hafi eitthvað gagn af þeim en það er stór munur á mér, eldgömul og búin að koma mér fyrir á flestan hátt og 19 ára stelpu frá Kína sem hefur aldrei farið að heiman og þarf að læra að lifa í allt öðruvísi samfélagi. Sum bréfin sem ég hef fengið hafa verið ansi fyndin, gleymdi reyndar alltaf að láta pabba hafa eitt sem var svona til að fullvissa foreldra að það yrði í lagi með ungana þeirra. Og svo fékk ég lykilorð ef foreldrar eða aðrir styrktaraðilar vilja borga skólagjöldin mín !
Svava
þriðjudagur, september 11, 2007
Helgin í GrimsbyFórum um helgina til Grismby, pabbi og Iðunn systir með Stebba sinn og Nonna og Svövu voru þar í heimsókn. Við skruppum til Cleethorpe sem er nú eiginlega samvaxið Grimsby fórum þar á pöbbinn í leikjasali og á austulenskt hlaðborð, svakalega fínt. Um kvöldið var kjaftað ógurlega, og dansað við Gypsy kings, svo á einhvern óskiljanlegan hátt endaði allt í vatnsslag og það á að vera mér að kenna en getur ekki staðist því ég geri aldrei neitt sem ekki má, kannski betra að tala við þann sem vissi hvar slangan var geymd ;)
Á sunnudaginn dröslaði Iðunn Stebba í búðir og fataði hann upp fyrir veturinn en ég og Gunnar aðstoðuðum litlu hjónin við að útbúa hvílíka veislu ala Jamie Oliver. Lamb og rif og kjúklingur ( aldrei lítill matur þegar Hulda er við stjórn) fór í frábæra marineringu og allt á grillið. Meiri myndir á picasa). Pabbi og systkini Les mættu með sitt fólk í herlegheitin.
Núna er ég heima með hálsbólgu og beinverki oj bara, held að pabbi og Iðunn hafi borið þetta í mig, sendi Gunnar í búðina eftir c-vítamíni og sólhatti. hóst hóst kv. Svava
föstudagur, september 07, 2007
Veðrið er búið að vera geðveikt í dag og í gær, alveg heiðskýrt og smá gola. Vonandi verður það svona áfram þegar Iðunn og co með pabba koma í heimsókn, þau fara reyndar beint til Grimsby en við förum líka á morgun og hittum þau.
Bergþóra er alsæl í dag, ein bekkjarsystirin býr í götunni og nú er sko verið að leika þrátt fyrir skort á sameiginlegu tungumáli.
Svava
fimmtudagur, september 06, 2007
Hér sit ég út í garði og blogga, 23 gráðu hiti, logni
og glampandi sól. Það er 6. september og veðrið hefur verið alveg dásamlegt undanfarna daga. Við keyptum okkur nokkra garðstóla og borð fyrir nokkrum dögum og það kemur sér aldeilis vel núna. Bergþóra Sól er byrjuð í skólanum á fullu og líkar vel, ég hitti skólasystir hennar í dag sem tjáði mér að hún sæti við hliðina á Bergþóru, ansi skemmtileg stelpa með stríðniglampa í augunum og ansi örugg með sig, áreiðanlega góður félagsskapur þar á ferð. Eins er BS mjög ánægð með hádegismatinn sem henni stendur til boða, sem er mikil breyting frá því að hún kvartaði yfir vondum mat í Heiðaskóla þann tíma sem hún var þar.
Svava fór hjólandi í skólan sinn til að ræða málin við skrifstofuliðið og fl. Þannig að ég sit hér einn út í garði og fæ mér te. Er nokkuð betra í heimi hér en að hugleiða um lífið og tilveruna, og hvað skal gert við slíkar kringumstæður.Ég fór síðasta laugardag á minn fyrsta heimaleik Leeds United fc. á Elland Road.. Svava og Bergþóra Sól ákváðu að skutla mér, einum og hálfum tíma fyrir leik, sem átti að hefjast klukkan fjögur. Það tók ekki langan tíma fyrir mig að átta mig á því að ég hefði átt að fara um hádegi af stað þegar við sátum föst í umferðaröngþveiti þegar við nálguðumst leikvanginn. En allt gekk þetta vel og eftir að ég hafði keypt miða á dýrasta stað (28 pund), ekki fáanlegir aðrir miðar, þá var það einstök tilfinning að koma inn á leikfanginn nokkrum mínútum áður en flautað var til leiks og að heyra 26.800 manns syngja
stuðningsöngva Leeds-áhangenda. Það fór um mig unaðshrollur og ætli maður sé ekki orðinn smá Leedsari eftir þessa heimsókn, það er nú ekki hægt annað. Að vísu voru þarna nokkuð hundruð stuðningsmenn Hattaranna, Luton Town fc. sem voru í heimsókn og þeir létu líka heyra í sér þegar tækifæri gafst. Það er í raun alveg ótrúlegt að koma á leik í 3 deildinni gömlu og það eru tæplega 27. þús. áhorfendur, þetta gæti ekki gerst annarstaðar í heiminum nema hér í heimalandi fótboltans. Leikurinn lauk með sigri “minna manna” og þetta er besta byrjun Leedsara síðan ´84, því miður var búið að draga af þeim 15 stig í byrjun, sem var einnig gert í fyrra þegar var dregið af þeim 10 stig og þess vegna féllu þeir. Enda eru stuðningsmenn Leeds alveg brjálaðir út í Deildarsamtökin og syngja háðsöngva þeim til heiðurs. Jæja ætli þetta sé ekki gott í bili, ég verð kannski eins og mér skilst að Jón Ben var orðinn þegar hann var í Danmörku, að fylgjast jafnvel með Finnsku 2 deildinni og fleira því umlíkt áður en yfirlíkur, svo segir sagan allaveganna. Nonni verðu þá bara að sverja þetta af sér.Fótboltakveðjur
Gunnar Halldór
sunnudagur, september 02, 2007
Lítið að frétta hér út rólegheitunum. Er búin að lesa og horfa á sjónvarp. Í fyrradag var sýnt á mörgum stöðvum frá minningarathöfninni um Díönu prinsessu og líka sjónvarpsmyndin sem ég sá að var á dagskrá líka á rúv. Ég veit ekki hvað það er með Díönu prinsessu en ég man að ég grét þegar hún dó og þá var ég ekki alltaf skælandi eins og í dag, í dag þarf ég bara að hugsa um ræðuna hans Harry prins þegar hann talar um mömmu sína til að fara að tárast. Meira hvað maður getur verið meir.
Við fórum í kirkju í morgun, völdum aftur að fara í baptistakirkju South Parade Baptist Church veit ekki hvers vegna en hún er önnur af tveim sem við göngum fram hjá og virðist vera líflegt starf í henni. Messan var löng með bæði söng leiddum af orgeli og svo líka með forsöngvurum með mikrafóna og gítar, trommur og píanó. Samt svona hógvær og róleg athöfn. Margir taka þátt ein las og sýndi brot úr Shrek og talaði um að skammast sín ekki fyrir trúna, eða eins og stendur í rómverjabréfinu 1:16 eg fyrirverð mig ekki fyrir fagnaðarerindið; því það er kraftur Guðs til hjálpræðis hverjum þeim sem trúir, presturinn lagði síðan út frá sama versi og talaði lengi og vel og notaði powerpoint. Það var líka altarisganga en þar er aðstoðarfólk sem gengur með brauðið og vínið í litlum staupum til safnaðarins svo maður bara situr og fer ekki til altaris eins og við þekkjum. Svolítið öðruvísi en auðveldar gestum eins og okkur að taka þátt. Annars saknað ég í þessum messum að byrja hana ekki á signingu og í þessar var ekki Faðir vor og ekki trúarjátning. Samt falleg og nærandi athöfn.
Ekki má gleyma því að fólk gaf sig að máli við okkur ung kona og gamall karl sitt í hvoru lagi tilbúin að bjóða okkur velkomin og segja okkur frá hvernig kirkjan starfar, svo við komumst aftur að því að kirkjur eru góðir staðir til að kynnast fólki.
Annars er ég líklega búin að velja mér kór, Leeds Festival Chorus en fyrsta æfingin er ekki fyrr en 19. september og þá á að æfa Messias eftir Handel, ekki slæmt það. Flutningurinn verður svo 8. des í Leeds Town Hall. Kórinn telur eitthvað um 150 manns svo líklega kynnist maður einhverjum þar.


