þriðjudagur, ágúst 22, 2006

Ferðasaga 4. hluti
10. ágúst: Yamdrok-Guantse-Shigatse
Við höldum nú frá Lhasa og á vit fjallanna. Á fjórum Toyota Lancruiser bílum Við förum upp í Khampa La-skarðið sem er í 4.794 m h.y.s. Leiðin upp skarðið börn allsstaðar Hér er ótrúlega falleg útsýn yfir bláleitt Yamdrok-vatnið og snævi þakin Himalaja-fjöllin sem teygja sig upp í yfir 7.000 m hæð. Við snæðum nestið okkar í grænum reit við vatnsborðið og ökum því næst í átt til Gyantse og heimsækjum á leiðinni dæmigert bóndabýli. Vegurinn á milli Khampa La og karo Lapasset var víst í sundur, tveggja ára brú sem hrundi bara einn góðan veðurdag. Við fórum því aðra leið, áðum við veginn í skugga stórra trjáa. Nestið var kjúklingaleggur, harðsoðið egg, banani, rúnstykki með osti og ostakökusneið snyrtilegt í öskju. Þarna voru berrassaðir strákar að baða sig í læk og fljótlega spruttu upp fleiri börn og konur sem horfðu á okkur eins og naut í nývirki og við á það, maður er nú eiginlega bara orðinn vanur því, en börnin horfa og benda og hlægja á mig, hér í Tíbet er víst ekki mikið um feitt fólk svo ég þyki stórmerkileg og fólkið snertir mig ef það fær tækifæri til. Við stoppuðum reglulega til að taka myndir og teygja úr okkur. Bíulstjórarnir eruð vingjarnlegir og fínir en umferðarmenningin hér er ekki upp á marga fiska, Gunnar segir að hann hafi aldrei heyrt mig segja jeddúdamía eins oft, en þeir taka fram úr í kröppum beygjum á heilli línu, taka fram úr milli tveggja bíla og troðast eins og þeir geta, okkar bílstjóri liggur fast á flautunni og flautar á allt kvikt, jafnvel þó það sé vel úti í kanti, Tolli sagði að “það væri nóg að það væri fugl á grein.”
Lífið hér viriðist allt bundið við veginn, húsin eru byggð meðfram veginum bæði í sveit og í borg, öll verslun á sér stað í litlum húsum sem líkjast helst bílskúrum byggðir í löngum röðum, þar er verslað með allt á milli himins og jarðar, frá sementi, grjónum, drykkjum, dekk, sófasett, föt. Hvar sem við keyrðum var fólk við veginn að selja melónur, bíða eftir rútu vinna við veginn og byggingar og á ferð með kyr og kindur, berandi hey, og svo líka bara sitjandi og ekki gátum við ímyndað okkur hvað að gera. Okkur fannst við hafa séð allt þegar við sáum um 1 árs gamalt barn skríða eftir veginum með foreldrið með sér. Börnin eru reynar út um allt vinkandi og brosandi, sum betlandi og ansi aðgangshörð.
Við æjum líka á okkar hæsta punkti í 5.010 m hæð í Karo Lapasset-skarðinu. Næsti áfangastaður er Gynatse þar við sækjum heim Kumbum-klaustrið en nepalskur byggingastíll þess er víðfrægur þar sem mikið fer fyrir augum Búddha á toppnum sem horfir vökulum augum í allar fjórar höfuðáttir. Í klaustrinu eru alls 108 helg herbergi og frá þakinu er afbragðs útsýn yfir bæinn.
Sael oll komst loks i internet samband og ta i Tibet, erum nu i borg sem heitir Sihigatse, vorum a mikilum akstri i gaer, forum upp hrikalegt skard sem kambarnir hreinlega folna vid hlidina a liklega svona 20 faldir kambar, tar saum vid lika mikid af jakuxum, svo var ekid um mikla eydimork eda svo fannst okkur en allststadar var folk og hvar sem vid stoppum hoppa upp brosandi born. SVo heimsottum vid eitt enn hofid, sumir i hopnum eru nu alvega ad fa nog af teim, svo duttum vid laglega i lukkupottin, tar sem vid gengum i gegnum t'ypiskt T'ibetsk torp tar sem ein amman vildi endilega bjoda okkur inn, tad er mjog skrytid ad sja hvad folkid her byr frumstaett, husdyrin i framgardinum, kyr, jakuxi, haenur og hundur, vatnid sodid med solarspeglum, og eldad med jakuxatadi, samt var a heimilinum baedi sjonvarp og hljomflutningstaeki. Amman var heima med barnabornum, tegar atti ad taka af teim mynd vildi ein stelpan punta sig dro fram skuffu, i henni voru bara skor sem hun for i fyrir myndatokuna. Allstadar er verid ad byggja en ekki a mikid nutimalegan hatt heldur med heimagerdum mursteinum ur leir, svo er allststadar verid ad turka jakuxatad til ad safna eldsneyti. Eftir mikinn akstur og ogleymanlegt aevintyri erum vid nu a luxushoteli, miklar andstaedur.
Tibet er i um 4000 m haed yfir sjavarmali og vid berjumst morg vid hafjallavekiki sem lysir ser med hausverk og oglegdi, hun kemur litid vid Gunnar en Svava er frekar slopp og lystarlitil, latum okkur samt hafa tedda allt til ad geta upplifad aevintirid, verd reynar ad laedast upp troppur og labba haegt til ad standa ekki alveg a ondinni og henda ekki pulsinum i haestu haedir.
Forum a laugardag aftur til Beijing og svo heim a tridjudag.

Áfram ökum við til Shigatse og komum þangað um kvöldið.

Ferðasaga 3. hluti Tíbet
7. ágúst: Beijing-Lhasa
Morgunflug til Lhasa með viðkomu í Chengdu. Eftir komu til Gonkar-flugvallar sem liggur í 3600 hæð tekur við um 2ja klst. akstur með fram Yarlung Zangpo-fljóti til höfuðborgar Tíbet, Lhasa. Hótelið okkar er vel staðsett í gamla borgarhlutanum nálægt Jokhang-musterinu. Við tökum því rólega fyrstu tvo dagana meðan við venjumst þunna loftinu.
Yak hótel er staðsett í Tíbeska hluta Lhasaborgar, við East Beijing road mikla umferðargötu, svo það var mikill umferðarhávaði langt fram á kvöld og snemma á morgnanna. Mest fer fyrir bílflautunum sem tibetbúar nota óspart.
Hótelið er annars fínt, við vorum óttalega drusluleg og sprengmóð þegar við komum en á móti okkur tók her lítilla stelpa sem skelltu okkar níðþungu töskum á bakið og hlupu með þær upp á fjórðu hæð, svo klöngruðumst við á eftir á flókaskóhraðanum, eða 10 skref og anda svo 15 sinnum.
Maturinn í Tíbet er ólíkur þeim kínverska og ekki eins góður og svipaður á flestum stöðum, enda fer maður ekki til Tibet til að borða góðan mat. Mikið er um að maturinn sé steiktur úr olíu, eins og tómatar, kartöflur egg og bacon á morgnana. Þá var líka boðið upp á bygggraut, grófari en hafragrautur og sumir bara glaðir með hann. Tíbetar nota bygg mikið, í grautinn, í tsampa, og brygga úr honum vín sem líkist mysu. Fengum aldrei ost, smjörið var með þrálykt, djúsinn eins og Egils blandaður. Töluvert ber á indverskum áhrifum, kjúklingakarrý, svínakarrý, nanbrauð. Við hliðina á hotelinu er Duyna restaurant, þar var hægt að fá sæmilegan vestrænan mat sem við Silla nýttum okkur á frjalsa deginum. Annars var maturinn flestur innifalinn og það er ágætt á svona framandi stað að þurfa ekki að fara að leita að mat.
8. ágúst: Lhasa
Þann dag heimsækjum við helgasta musteri Tíbetbúa og áfangastað fjölmargra pílagríma. Jokhang-hofið var byggt að tilstuðlan Songtsen Gampo Tíbet-konungs á árunum 639-647. Í musterinu eru ótal Búddha-styttur og friðsælt andrúmsloftið er heillandi. Við fylgjum í fótspor pílagrímanna í gegnum fjölmörg herbergi þar sem þeir kveikja í reykelsum og færa öndunum jakuxasmjör.
Það var ótrúleg upplifun að heimsækja þetta musteri, við gegnum frá hótelinu með púrúpú, hér í þessum bæjarhluta virðast engar umferðarreglur vera í gildi, maður bara fer út á götuna og reynir að stoppa umferðina, bílstjórarnir forðast í lengstu lög að stoppa en sveigja fram hjá ef þeir mögulega geta. Stutt ganga var að musterinu, fólkið hér er mjög ólíkt fólkinu í Kína, það er með dekkri húð, skítugt, og í allskyns fötum,sumir tíbetbúar eru í vestrænum fötum, fínir kínverjarí vestrænum fötum, tíbetsku konurnar eru í síðum gráum og brúnum pilsum með rönddóttar svuntur og vafinn höfuðbúnað, karlarnir eru í dökkum fötum með filthatta, sumir með rauð bönd vafin um höfuðið, en börnin yfirleitt í vestrænum fötum og margir strákar með derhúfur.
Lífið í Tíbet gengur út á tvennt, baráttuna um brauðið og að stunda búddismann. Í klaustrunum sem við heimsóttum var allstaðar fólk að iðka sína trú, Mest við Jokhang, þar var mannmergð utanvið að gera þessa hreyfingu að bera greipar að enni, hálsi og brjósti og renna sér svo beinflöt á jörðina. Fólkið gengum um með smápeninga, poka með jurtasmjöri og hitabrúsa með bráðinn olíu til að færa hinum ýmsu búddalíkneskjum sem eru í hofunum. Við héldum fyrst að hitabrúsarnir innihéldu te, en svo var nú ekki jakuxasmjöri var gefið búddha en nú er það svo dýrt að jurtasmjör og olía hefur tekið við. Fólkið treður peningum hvar sem það getur á altörin undir glerin, í safnbauka og á veggina. Það þarf þrennt til að það geti verið hof, styttur, ritningar og munkar, þá er hof. Við Jokhang eru stór reykelsisker fyrir utan svo reykinn liggur hátt í himininn, lyktin af reykelsunum, smjörinu, fólkinu og sótinu er yfirþyrmandi, hofin eru klædd með skrautlegum vefnaði að innan og hanga líka veifur í löngum hólkum út loftinu. Munkarnir eru um allt í sínum rauðu kuflum sumir að kyrja aðrir að selja blessanir, gamlir gráhærðir í hægðum sínum ræðast við, ungir munkar hlaupandi um og einn í skugganum að skrifa sms.

Eftir hádegisverð heimsækjum við Norbu Linka sem var sumarhöll Dalai Lama og þar sem hann dvaldi lengstum. Við göngum í gegnum garðinn og lítum á einkahíbýli Dalai Lama númer 8., 13. og 14. Það var einmitt frá þessum stað sem núverandi Dalai Lama flýði frá Tíbet árið 1959.

9. ágúst: Lhasa
Dagurinn hefst með einum af hápunktum ferðarinnar: Potala höllinni. Hinn 5. Dalai Lama lét reisa þessa höll um miðja 17. öld eftir að hann tók við völdum af kínverska keisaranum. Þetta er fjölsóttur áfangastaður pílagríma frá öllum hornum Tíbets og við fylgjum þeim um nær endalausa ganga hallarinnar. Við förum einnig upp á hallarþakið þar sem voru híbýli núverandi Dalai Lama. Þaðan er ægifögur útsýn yfir Lhasa-borg og tilkomumikinn fjallahringinn. Í höllinni eru geymdir ómetanlegir fjarsjóðir, þ.á.m. kista fimmta Dalai Lama sem smíðuð er úr 3700 kg. af skíra-gulli. Aðrir Dalai Lama, til og með þess 13., eru einnig grafnir í Potala-höllinni.

Ég og Silla lögðum ekki í að klifra upp allar tröppurnar í Potalahöllinni, við erum báðar frekar slappar, ég vaknaði með hausverk og ógleði kl 1 eftir að hafa sofið í svona 2 tíma, velti mér lengi vel en gafst svo upp og tók tvær ibufen og svaf eftir það ágætlega. Í dag er kaldara og hefur snjóað í fjöll.
Í hádeginu fórum við öll saman í sem púrúpú kallaði picknik place, þettta er greinilega smá vísir að þjóðháttasafni með gömlum tólum og tækum tengdum landbúnaði og þarna var líka gömul vatnsknðuin myllla, það sem var ,meira ,merkilegt var risastórt vatnsknúið bænahjól, svo þar svífa möntrunar endalaust um. Við fengum ágætan og fróðlegan hádegismat í þessum garði sem var nú frekar sjoppulegur en friðsæll og svalandi andrúmsloft, í mat var meðal annars einhverskona sambaostur sem ég kastaði næstum því upp af, sweet tea, yak buttermilk tea, yak lungu, yak kjöt, fullt af grænmeti og skritið hvítt brauð. Báðar gerðirnar af tei voru mjög sætar og vemmilegara og held ég að við flest látum það vera hér eftir. Gunnar fékk bjór í pínulitlu vatnsglasi en stelpunar í síðu pilsunum sínum með fallega brosið voru alltaf að koma að fylla í glasið þó hann væri bara búinn með einn sopa.
Næst lá leiðin í ….klaustrið það’ hafði á sínum tíma verið gríðarstórt með 5500 munkum en nú eru þar um 500. Púpúrú sýndi okkur mynd með hana, svín og slöngu í miðjunni sem tákna hatur fáfræði og girnd, bæði kynferðislega og í hluti (Want). Þessar hvatir valda því að við gerum mörg mistök og við eigum að berjast við að hemja þær og bæla haga okkur rétt svo við endurfæðumst á betri stað, hann tók dæmi ef við drepum skordýr að ástæðulausu getum við endurfæðst sem skordýr, svo Hörður hefur miklar áhyggjur af því núna.
Í… sáum við rökræður munkanna þeir ræða 6 daga í viku í tvo tíma í senn í garði. Þeir eru tveir og tveir saman, annar situr og kemur fram með skoðanir á ritningunni sem þeir ræða en hinn stendur með perlubandið sitt um handlegginn, togar það upp slær hægri hendi í þá vinstri og stappar fram með vinstri fæti til að kveða niður ranghugmyndir og fáfræði félaga síns. Þeir voru þarna á öllum aldri en mest fjörið var hjá þessum yngri, það kjaftaði á þeim hver tuska og þeir öskruðu og skömmuðust og stöppuðu og slógu með krafti svo þeir eru líklega með sigg í lófunum af þessari iðju, þeir eldir sátu rólegri og ræddu saman. Drengir mega ákveða að verða munkar 16-17 ára en áður fyrr sendu fjölskyldur gjarnan einn dreng í klaustur 2-3 ára, nú er það fátíðara en þó en þá taka þeir sjálfir ákvörðun um að verða munkur um 16-17 ára.
Eftir klaustrið var farið í teppaverksmiðju þar sem við sáum teppin ofin, sáum stein (mineral) litina sem notaðir eru í teppin sem eiga að duga í 3 kynslóðir. Konur unnu við vefnaðinn og við aðstæður sem vinnueftirlitið myndi nú ekki samþykkja krupu á gólfinu en sungu samt og brostu við vinnuna.

Ferðasaga 2. hluti
2.-7. ágúst: Dvalið í Beijing.
Dagana sem dvalið verður í Beijing verður boðið upp á fjölbreyttar kynnisferðir en eftirfarandi kynnisferðapakki með 4 ferðum er innifalin í verði ferðarinnar.
Þeir sem þess óska geta sleppt kynnisferðapakkanum en fjölbreyttar aðrar ferðir eru í boði, sem bóka má eftir komu til Beijing (leiðsögn á dönsku eða ensku). Kynnisferðapakkinn kostar 15.000 kr. á mann og hann skal bóka í síðasta lagi 5 vikum fyrir brottför. Í pakkanum eru eftirtaldar ferðir:
1. Forboðna borgin og Hof himinsins. Dagsferð með hádegisverði.
Forboðna borgin er stórkostleg þar bjuggu keisararnir með eiginkonu, börnum, hjákonum, þjónustukonum og geldingum. Gulur er keisaralegur litur og þar eru þökin með gulum keraminkflísum en rauður er áberandi í veggjunum, stór hluti hennar var verið að gera við til að hafa allt fínt fyrir OL 2008. Þök, loft veggir og rjáfur er allt skreytt með mynstri og táknum, og á þökunum eru dýr fleiri eftir virðingarstöðu þess sem notaði bygginguna. Handriði, brýr og styttur úr marmara og reykelsisker 3 m há úr kopar. Hún var forboðin almúganum, þar bjó keisarinn, með eiginkonu, börnum, hjákonum og geldingum. Geldingarnir voru einu mennirnir sem eyddu nóttinni innan borgarmúranna, en á daginn voru embættismenn og herforingjar þar í sínum erindagjörðum. Hún er öll úr timbri og hefur brunnið nokkuð oft. Forvitnilegt var í upphafi að sjá verði borgarinnar þramma inn með nótur og litla kolla skella sér svo niður og syngja hástöfum.
Silkiverksmiðja fengum smá sýningu á hvernig silki er unnið. Silkipúpurnar eru ýmist með einni lirfu eða tveim .Einföldu púpurnar eru teknar og soðnar svo er fundinn endirinn á þræðinum og vafinn upp á hjól, svo er þráðurinn notaður í vefnað. Tvöföldupúpurnar eru teknar í sundur og strekktar yfir grind, aftur og aftur þar til þær eru strekktar í sængur. Hádegisverðurinn þann dag var hringmatur og svo danssýning. Síðan var farið í Temple of heaven, þangað kom keisarinn til að biðja um góða uppskeru, kom með miklu fylgdarliði og var búinn að fasta á mat og konur á undan. Mjög fallegar byggingar og helsti munurinn að þökin eru með bláum keramikflísum.
2. Vegur andanna Cloisonne factory og Friendship store Kínverski múrinn. Dagsferð með hádegisverði. Vegur andanna er leiðin að grafhýsum keisaranna, hún er vörðuð mörgum marmarastyttum, fyrst af dýrum einu standandi og einu sitjandi og svo af embættismönnum og herforingjum, svo kemur hliðið að himnaríki en svo eru þar um hæð dreifð grafhýsi sum búið að grafa upp og önnur ekki en við heimsóttum þau ekki.
Við flesta staðina sem við heimsóttum var mikil sölumennska, drykkir, sólhlífar, minjagripir, margir merktir OL 2008 , töskur, núðlur, sígarettur, styttur.
Allir þessir sölustaðir sem bættust við eftir á voru svolítið spennandi en samt þreytandi, þar virðist mega ganga að gæðunum vísum en verðin eru aftur á móti himinhá og allsstaðar þarf að prútta .sem á nú ekki beint við mig. Kínverjarnir eru líka ágengir “come looky looky” og taka nei ekki sem svari strax, kannski vorum við ekki nógu dugleg að segja bu jao sem þýðir ekki versla.
Cloisonne er gömul frönsk aðferð til að skreyta muni, upphaflega bara úr kopar en nú líka á tréplatta. Munirnir eru t.d. vasar og bakkar en líka dýrastyttur, skartgripir og hárskraut. Gullfallegt með allskyns flóknum mynstrum. Fyrst er móteð munstur með örfínum koparræmum, og límt ámuninn, svo eru fyllt inn með steinlitum og svo eru munirnir brenndir og svo pússaður. Tíminn sem tekur að vinna munina er mælt í mánuðum, agalegt var að sjá vinnu aðstæður fólksins þarna, meirihluta konur, setið á gömlum eldhuskollum...
Múrinn. Þegar við komum að múrnum var fyrst tekin hópmynd svo gáum við valið um tvær leiðir upp á hann. Við röltum af stað með það í huga að fara eins langt og við vildum, við Gunnar fórum framhjá 4 varðturnum. Múrinn er svona 3-4 metra breiður á þessum kafla og svipað hár. Hann er heill á þessum kafla og frekar brattir kaflar, tröppurnar af ýmsum stærðum, sumstaðar þannig að hreinlega þurfti að klofa eina í einu. Mjög mikið var af fólki á múrnum og mest af kínverskum túrhestum. Útsýnið var því miður ekki mikið, en vel sást stóra augýsingaskiltið um OL2008 “One world, one dream.” Mér fannst líka skemma upplifunina að allstaðar var sölufólk. Í ferðasögu sem ég las á netinu fer maðurinn með rútu og er settur af á einum stað og svo sóttur 3 tímum og 10 km seinna það er örugglega ríkari upplifun, bæði að losna við sölumennskuna og svo að vera ekki umkringdur fólki allan tímann, aftur á móti þarf þá þrek til að ganga.
3. Sumarhöllin. Dagsferð með hádegisverði. Sumarhöllin er staðsett í garði um 15 km fyrir utan miðborg Beijing þar hafði verið lítið vatn sem keisari lét stækka og nota uppgröftin til að útbúa hæð þar sem Cixi lét gera Lamahof en hún var buddhatruar. Mikið fór fyrir sögu hennar í garðinum, þar var gangur með myndum af henni teknar sumarið 1903 og fötunum hennar. 1911 deyr hún svo hún drap keisarann og svo sig. Sá keisari var systursonur hennar sem hún lét giftast bróðurdóttur sinni en eftirlét honum engin völd. Einn keisarinn var frá suðurkína og saknaði svo landslagsins þaðan að hann lét mála 47000 myndir á langan gang bæði utan og innaná. Merkilegt að þessar gömlu byggingar eru úr timbri og hafa verið endurbyggðar of í tímanna rás. Í garðinum er líka lítið hafnarþorp sem mér skildist að hefði verið mikill verslunarstaður.
Þegar hér var komið við sögu bættum við nokkur við að fara á Kínverska acrobatsýningu, fólk á línu, hoppandi gegnum hringi beyglandi sig saman, á hjólum 11 stelpur á einu hjóli frábær sýning en í skelfilegum stólum.
4. 5. ágúst Pekingöndin. Kvöldferð á veitingahús.Þessi kvöldferð var á hóteli hinum megin við götuna, við uppgötvuðum þá loks hvernig ætti að fara yfir götuna, auðvitað voru undirgöng sem Carmen leiddi okkur í. Veislan var við hringborð og fyrst var borið í okkur fullt af öðrum réttum, þegar við vorum búin með fullt af þeim var loks komið með öndina, kokkurinn kom og skar hana fyrir framan okkur í rúmlega hundrað bita, hún var góð en fólk misánægt með sósuna.
Þjónustan hér í kina er svolítið skrýstin, þjónarnir eru ekkert að koma of oft og koma ekki eftir matinn og bjóða kaffi og með því, kannski skiljanlegt þegar við erum í einhverjum “ríkismáltíðum” en það er ekki heldur þegar við pöntum eftir matseðli. Aftur á móti eru þeir duglegir fyrri hluta máltíðar að koma of fylla á tebollann. Eftir þessa ferð er maður alveg farinn að kunna að meta grænt te, en mér finnst þó jasmine te best. Teið er dýrt og kostaði kg. Af grænu te fyrir prútt 600 yuan en jasmine te 198 yuan.
Einnig er í boði 4ra daga (3ja nátta) ferð til Xian, 3.-6. ágúst. Verð á mann í tvíbýli er 42.500 kr. (skal bóka í síðasta lagi 10. júní). Í þessa ferð fóru þrír ferðafélagar sem áður hafa ferðast um kína og séð helstu staðina í Beijing.
Annars var hópurinn 15 manns og mjög góður og þægilegt fólk að ferðast með. Mest dáðist ég að fullorðna fólkinu sem var oft á tíðum miklu sprækari en ég (sem þó var yngst í hópnum) að þramma út um allt.
Ingvar og María, Guðrún og Steingrímur, Sigrún og Skírnir, Jónína, Ingibjörg, Bolli, Tolli, Silla og Hörður, Svava og Gunnar.

Ferðasaga 1. hluti
1.-2 ágúst Ísland-Beijing
Morgunflug frá Keflavík til Kaupmannahafnar. Framhaldsflug með SAS skömmu eftir kvöldmat (kl. 20:55) til Beijing þar sem lent verður næsta dag (kl. 11:50). Ekið frá flugvelli að Marriott New World Courtyard hótelinu þar sem dvalið verður næstu 4 næturnar. Eftir komu á hótelið verður haldinn kynningarfundur.
Flogið var með Iceland express, stutt og fínt flug, í Kaupmannahöfn vorum við að ná áttum þegar Gunnar segir átt þú ekki þennan bróðir, við vissum að Bjartur bróðir væri þarna einhversstaðar til að taka á móti Svövu Tönju, en það var frábært að hitta hann og stelpurnar svona óvænt. Þau voru á leið í Tívolí en við ákváðum að taka lestina inn á Strik og spóka okkur þar, þar var vel heitt en alltaf jafn huggulegt, komum okkur fyrir á veitingastað undir sólhlíf og kíktum í búðir þar til tími var kominn til að skella sér i lestina í 15 mín ferð á völlinn.
Flugið til Beijing með SAS var frekar slæmt, langt og þröngt svo við vorum mjög þreytt við komuna til Beijing. Hótelið var flott hluti af risastórri samstæðu sem í var ein Kringla á 5 hæðum fullt af veitingastöðum og sundlaug ofl. Supermarket í kjallaranum og íbúðaturn.
Í Beijing var allan tíman mikið mistur og hitinn á bilinu 30 - 35 °C, okkur leið þó bara vel.
Beijing er undarleg borg, með óhemjumikið af fólki, háum háhýsum og mikil umferð. Við vorum mest inni í miðborg Beijing og sáum lítið af gamla tímanum þar. Allstaðar er verið að byggja og endurbæta, þeir eru á fullu í undirbúningi fyrir ólympíuleikana 2008, kínverjar klára framkvæmdir yfirleitt á undan áætlun, t.d. Átti að opna lestina Beijing Lhasa 2007 en hún var opnuð núna fyrr í sumar.
Maturinn í Beijing oftast er margir smáréttir í boði, allir settir á snúandi miðju borðsins og svo fær sér hver á sinn disk og oftast þurftum við að biðja sér um hnífapör, margir í hópnum eru samt greinilega vanir að handleika matprjóna og nota þá. Sem hluti af kynnisferðunum var alltaf hádegismatur. Algengustu réttirnir eru , gúrkur í súrum legi, soðið kál, kál í súrum legi, kjúklingur með jarðhnetum og sæt sósa, svínakjöt í strimlum, nautakjöt í strimlum, núðlur stundum, vorrúllur oftast með einhverju kjöti, einu sinni þó með einhverju dökku sætu undir tönn eins og kartöflumjöl, heilir fiskar með roð og sporði, og alltaf vatnsmelónur í eftirrétt. Svo fórum við á veitingahús í kringum hótelið og þá var aðeins meiri fjölbreytni, á einum staðnum létum við einu stelpuna sem gat talað hrafl í ensku velja fyrir okkur matinn, þá var komið með heilan spriklandi fisk, einhverskonar kola í poka og spurt hvort hann væri nógu góður,  svo voru flottar heilar rækjur í skel bæði steiktar og soðnar. Annað kvöld fórum við á undarlegan stað og Gunnar pantaði andatungur ! þær voru bornar fram á djúpsteiktum kartöfluþráðum og voru líklega djúpsteiktar líka, þær voru áfastar beini og sinum lítill matur og bragðlítill en mikil upplifun. Á frjálsa deginum vorum við Silla snöggar að lauma okkur yfir götuna og fá okkur pizzu og kók, enda alveg hægt að fá nóg af hringborðhaldi.
Leiðsögumaðurinn okkar í Beijing kallaði sig Carmen, sagði að þau veldu sér yfirleitt vestrænt nafn og hún hefði sem stelpa séð svo fallega leikkonu leika Carmen. Hún var pínulítil og snaggarleg eins og kínverjar eru gjarnan, hún var alltaf með sólgleraugu og hatt og talaði um að ljós húð væri meira fashionable heldur en sólbrún. Enskan hennar var sæmileg en ekki meira en það hún virtist vita af því og endurtók sig oft og jafnvel stafaði orðin ef hún vildi vera viss um að við skildum. Hún sagði ja og ok í tíma og ótíma og wait me here þegar hún vildi að við biðum. Hún var dugleg að fræða okkur um keisara og hjákonur þeirra sérlega Xici sem varð svo drottning og stjórnaði ríkinu í gegnum son sin og systkinabörn. Því miður fór minna fyrir að hún fræddi okkur um land og þjóð, eitt sinn kom hún með langan fyrirlestur um ágæti Tailands sem ferðamannastaðar og frelsi og fjölbreytin í kynferðismálum, mátti helst halda að hún væri að reyna að selja körlunum ferð þangað. Svo brá auðvitað fyrir áróðri um ágæti kínverskra stjórnvalda og ómöguleg afskipti bandaríkjamanna t.d. af Taiwan.

þriðjudagur, janúar 03, 2006

Ferdalok: jaeja buid ad vera nog ad gera, forum a strondina eg og krakkarnari med Helgu Gudrunu vinkonu minni í Kennó sem er hér lika en Gunnar og gaeinn hennar foru ad horfa a fótbolta. Liklega hefur okkur ordid eitthvad of kallt allavega Lilju, Joni og Bergtoru tvi tau sofndudu öll eftir tad og voru half dom í kvöldmatnum. Mikid voru vid Gunnar nu samt glöd ad vera ekki ad borga löpp eins og Jón segir fyrir kvöldmatinn tvi tetta var frekar slappt hladbord og eina sem mer fannst virkilega gott var nautasteikin. Tókum svo taxa til Yumbo centrum og horfdum á flugeldasýningu og lifdum ödruvísi áramót, en samt skemmtileg stemming. Gunnar fór heim med slöppu krakkana eftir midnaetti en ég og Pétur skodudum mannlifid, mest á lesbiubar sem Helga og Bjarni halda sig gjarnan á. Hann fékk nú samt hálfgert menningarsjokk ad sjá of drukkin ungmenni á heimleidinni.

Á nýjársdag fór ég á ströndina og svo stedjudum vid reynadar alltof seint í Palmitos Park, ákvádum tegar tangad var komin ad eyda frekar naesta degi tar og fórum í Holisay World sem er tívolí og keila ofl. Tókum einn keiluleik, Gunnar vann Pétur ekki als ekki gladur yfir tví hann vill meina ad hann eigi alltaf ad vinna. Svo í tívolíd og krakkarnir skröltu um ii öllum tessum taekjum. og ég beid frekar kalt tví ég var ekki klaedd fyrir kvöldútiveru.

Hér er víst ver ég ad haetta er verid ad loka klára seinna

fimmtudagur, desember 29, 2005

Nú höfm vid verid á aksti í 3 daga og sèd meira og minna alla eyfjuna, maeli alveg med tessu. Fyrsta dagin fórum vid i gil sem ég kann ekki ad nefna Guayadeque eda eitthvad og skodudum hvar frumbyggjar kanaríeyja bjuggu i hellum, fórum svo til Las Palmas tar sem orkan fór meira og minna i ad Jon var ad kaupa hjólabretti en allir eyddu einhverju svo Mac Donalds á heimleidinni. Í gaer fórum vid Fatagaleidina og upp í fjöll tar sem geitur eru, tré á fjallstoppum og hávadarok, annars er eyjan´öll í kaktusum, aloa vera tómata og banana ökrum. Ï dag fórum vid hringinn í kringum eyfjuna og hvílíkir vegir eins og danska ferdabókin sem vid erum ad nota segir: tá finnst sumum leidin a köflum of spennandi beygjur hárnála krappar á veg sem er sylla utaní bjargi med annad dekkid eiginlega uti i Atlandshafi, svo ég var alveg á tauginni med í maganum og sveitta lófa og er nu ekki vön ad kalla allt¨¨ommu mína. Annars er gott ad keyra hér úti á vegum en ég hef mikid dádst ad Gunnari baedi í bílastaedahusinu í Las Palmas sem var eins og tad vaeri bara byggt fyrir Nissan Micra og í litu torpunum í dag tar sem göturnar eru örmjóar og ein meira segja var snarbrött slatta af metrum uppávid, hann hefur endalausa tolinmaedi lika í ad komast tangad sem hann vill, eins og i gaer tegar vid vorum ad fara á mac d eég hefdi longu gefist up.

mánudagur, desember 26, 2005

Annar í jólum: meiri rólegheit, Katan á svölunum gunnar vann aftur, svo jólaball í bodi Plúsferda og úrval-útsýn, hnalltórur, smákökur og smurribraud. Hress jolasveinn og íslenskt nammi. RÖltum svo af stad, rákumst á tetta fína mini golf, og fórum í tad nema Gunnar sem fór á naesta bar ad horfa á fótbolta hann hverfur stundum og tá er hann einhverstadar límdur vid slíkt eda úti í horn¡ med psp- i eyrunum og ad spila championship manager, gott ad allri skemmta sér. Svo er tetta ad verda hausverkur ad finna eitthvad sem allir vilja borda, endudum í dag á spansk-itölskum stad í Yumba og krakkarnir fengu hamborgara og vid chautebriand.
Jóladagur: eins og jóladagur á ad vera, algjör aflöppun, sofid lengi svo byrjad á konfektinu, nóa síríus frá Sigrúnu og mordinu í Drekkingarhyl og ekki stoppad fyrr en hún var búin en skemmtileg ad gera tetta í sólbadi, strákarnir fóru einir út í bae med lilju og voru voda ánaegdir ad taka taxa einir og redda sér. Tókum eitt Katan á svölunum, gunnar vann, svo fórum vid á texmex stad og fengum frábaeran mat. Löbbudum heim og gaman ad sjá ad tad er allt annad fólk á ferli seint á kvöldin en á daginn svona 30 árum aegri medalaldur :)
Adfangadagur: Fórum loks á ströndina, loks segi ég tví tat er uppáhaldid mitt í svona ferdum. Fórum á ströndina sem er hér naest, hún er reyndar frekar slöpp en notaleg. Fórum í sjóin og hann er bara fínn kaldur fyrst en venst svo, vid Jón syntum langt út. Fórum svo í messu í altjódlegu kirkjunni, íslenskur prestur man ekki hvad hún heitir. Saenskur einsongvari en annars almennur safnadarsongur voda hátídlegt og notalegt.
Eftir messuna var lidid svangt svo vid stedjudum á Burger King, svo upp á hótel, hofdum aetlad í mat á OK restaurant en allt upppantd og frekar dýrt en bad konuna sem tók vid jólapÖkkunum heitir Gudrún og vinnur tar ad maela med einhverju hún maelti med stad sem heitri Anno Domini og er i St augustin shopping center, vid tangad og létum okku hafa ad jólamatsedillinn var á 50 evrur á kjaft en hvílíkt flottur matur, humarsúpa gaesalifrakaefa, appelsínuönd, ís og konfekt, reynum bara ad lifa spart tad sem eftir er eda tannig. svo uppp á hótel ad opna pakka, allir voda gladir og takk fyrir okkur.

föstudagur, desember 23, 2005

aetti kannski ad baeta vid sma um matarmál. Krakkarnir eru sko ekki hrifnir af matnum hér morgunmaturinn á hótelinu er bara fínn, en teim finnst allt ödruvísi en heima og fussa og sveija.
Ádan voru tau samt i essinu sínu vid fórum á kínverskt hladbord og allir fundu eitthvad vid sitt haefi og is á eftir eins og hver og einn skammtadi sér sjálfur og allt fyrir 5,85,Evrur á mann sem losar eitthvad fimm hundrud kallinn. Ótrúlegt, krakkarnir voru ad hafa áhyggjur af tví ad stadurinn myndi ekkert graeda.
Annars finnst mér allt svo rólegt hérna lítid af fólki veitingastadirnir meira og minna hálftómir og ferlega afslappad andrúmsloft. mér fanns allt ödruvísi hér fyrir 20 árum eda kannski sé ég bara adra hluti, tá var nóttunum eytt á diskói sofid langt fram á naesta dag sólad sig og svo diskó aftur ef ég man rétt pínu ólíkt èda hvad !!!!!
Jñja ég man ekki hva`ég var komin langt í gaer tegar tíminn rann út, en í dag allavega er búìd ad vera hlýtt og notalegt, ekki beint sól sem var kannski gott, vid fórum í ferd med ferdaskrifstofunni, til torps sem heitir Mogan, tar var markadur, keypti bikini, pils og geisladisk med jóladiskói svaka fjor. Strákunum gengur vel ad eyda sínum peningum, keyptu byssur, tolvudyr og (Jón ) og Pétur bol. Svo voru teir hundleidinlegir tegar teir voru ordnir peningalausir adan sududu og sududu og eru nuna uppi i íbúd ad skammast sin, eg rauk med ta ur baenum i fússi. En afram med ferdina, fra Mogan var silgt til Puerto Rico, sem ég var víst búin ad ákveda ad vera í ef ég kaemi aftur tangad, en liklega hef ég verid nokkrum kilóum léttari tá tví tad torp liggur allt i brekku med morg hundrud trepum upp i efstu hótel, en lygnara tar og huggulegri strond, vid eigum orugglega aeftir ad fara tangad med straeto. ötrúlegt ad sjá hvernig tad er byggt hérna bara utaní fjöllin. Tók fullt af myndum og birti seinna. Jaeja svo tókum vid eitt katan a svölunum og vorum so lengi ad vid fórum ekki á jólasöngva sem meiningin hafdi verid. Ég finn ótrúlega lítid fyrir tví ad tad séu jól á morgun, einna helst Bergtóra sem vill vita hvort ég hafi keypt handa henni pakka, en pabbi hennar var svo mikill snillingur ad hann skildi teirra pakka eftir hjá fraenku teirra tegar hann var ad dreifa pökkum. Aetli dagurinn a morgun verdi ekki bara óskop líkur ollum hinum, nema ég aetla í messu, veit ekki hvd argir nenna mèd mér. Jaeja, aetli tetta sé ekki nóg í bili. jólakvedja frá Kanarí. kv. Svava

fimmtudagur, desember 22, 2005

dagur tv0, kaeri joli , mikid betri dagur i dag, solin farin ad skína eftir skýjaàr móttokur fyrr. Fórum med taxa i aqualand á frímidunum. 5evrur. Frábaer gardur allir krakkar ut um allt ad renna i alls konar brautum, og eg ad slaka á. Svo tókst pétri ad draga mig med i nokkrar brautir, uss tetta er nu ekki beint fyrir mig. en lifi tetta af, tók fullt af mydnum en get ekki birt taer strax. Lilja fékk sér fléttur og hin hennatattú.
Um kvoldid stedjudum vi`á OK restaurant ad skila af okkur jólagjofum, og bordudum tar lika, fraebaer matur og krakkarnir filudu ad skilja tjónana, en tad er kona fra keflavik sem á og rekur stadinn
Vá ég er a`blogga me`spaensku lyklabordi og synist eg ekki geta breytt tvi.

vi`lentum i fyrradag seint um kvold komum okkur fyrir og forum ad sofa.
Svo i gaer aetlum vid ad rolta um baeinn og skoda adstaedur vid vorum rett logd af stad tegar Gunnar hitti einhver solumann sem taladi hann inn a tad ad fara og skoda eitthvad hotel og look intrested og tykjast vera nordmenn, i stadinn fengum vid ad borda og mida i aqualand, ok tetta var spennandi og hrodalega flott hotel i svoa time share kedju en krokkunum fannst tetta sko ekki gaman. Tegar vid loks komust a okkar hotel foru allir ad slappa af og sofnudu, a timabili leit ut fyrir ad eg og Petur faerum ein út ad borda en endadi med ad krakkarnir foru med mér en Gunnar lagdi sig.
Annars er morgun matur á okkar hóteli ótrúlegt fyrir tetta verd .

þriðjudagur, maí 17, 2005

Nemandi benti mér á þessa slóð sýnist þetta samt vera það sama og ég hef áður vísað á

http://www.hugi.is/skoli/articles.php?page=view&contentId=2166709


glósur úr náttúrufræði 10. bekk

mánudagur, maí 02, 2005

http://www.ismennt.is/not/einarjo/ Fullt af fínu efni hjá Einari úr Langholtsskóla, mæli með sjálfsprófunum.

þriðjudagur, febrúar 01, 2005

Náttúrufræði 10. bekkur

Fann loksins aftur slóðina að upprifjunarheftinu sem síðast reyndist nemendum vel:

www.hi.is/~jsa/Upprifjun10b.doc

Kennari í Húsaskóla hefur líka tekið saman ágætis tenglasafn fyrir sína nemendur.

http://www.husaskoli.is/samramd02.htm


miðvikudagur, september 01, 2004

Tenglasafn aðallega náttúrufræði

Blandaðir vefir:
http://oldusel.ismennt.is/Html/natturufraedi.html Náttúrufræði vefsvæði Öldutúnsskóla
http://husaskoli.ismennt.is/raunindex.htm Náttúrufræðisvæði Gauta Magnússonar, Hússaskóla
http://school.discovery.com/
http://www.schoolscience.co.uk/content/index.asp bresk vísindasíða fyrir krakka
http://vefur2.umsja.is/landbunadur/wgrala.nsf/key2/index.html Rannsóknarstofnun landbúnaðarins
http://www.ismennt.is/vefir/nvvefur/ vefsíður um Náttúruvernd

Eðlisvísindi :
Efnafræði:
http://www.privatehand.com/flash/elements.html frumefnin með hljóðum og fjöri
http://www.chemicalelements.com/lotukerfið á ensku með ýmsum upplýsingum
http://www.aga.com/Web/web2000/IS/Home.nsf/ByKey/Homepage1?OpenDocument Aga .com um lofttegundir ofl.
http://education.jlab.org/atomtour/ um frumeindir og sameindir
um frumeindir og sameindir
http://www.flensborg.is/fagsidur/efn/103/net/vefprof/Prof1/krossaprof1.html efnafræðispurningar (misþungar)
http://www.schoolscience.co.uk/content/3/physics/bama/index.html úðabrúsar

http://husaskoli.ismennt.is/vefverkefni/kjarnorka.htm Ítarefni um kjarnorku
Rafmagn:
http://www.schoolscience.co.uk/content/3/physics/circuits/index.html raftengingar góðar æfingar
http://rafteikning.is/html_skjol/visindavefur.htm Vísindavefur Rafteikningar

http://www.nfh.is/gogn/edl1og2.doc glósur úr Krafti og hreyfingu


http://vefur2.umsja.is/landbunadur/wgrala.nsf/key2/internat mælieinigar

Lífvísindi:

http://web.ukonline.co.uk/webwise/spinneret/conten.htm ýmislegt
http://www.cytographics.com/portal.html frumumyndir
http://www.ucmp.berkeley.edu/alllife/eukaryotasy.html frumdýr ofl. Myndir
http://web.jjay.cuny.edu/~acarpi/NSC/13-cells.htm fruman
http://web.ukonline.co.uk/webwise/spinneret/microbes/virus.htm Veirur (sveppir, gerlar á næstu síðum)

http://svali.landspitali.is/lsh_ytri.nsf/htmlpages/blodbankinn.html blóðbankinn
http://biowww.clemson.edu/biolab/home.html góðir tenglar neðst um líffræði
http://nemendur.khi.is/ragjons/skolastarf/skjol/lif-10.glosur.ppt glósur erfðafræði
http://gen.is/index.asp erfðafræði á íslensku
http://dnaftb.org/ flott erfðafræði
http://www.hi.is/~magjoh/almfr/erfda/erfdir.htm erfðafræði, íslensk mestmegnis lesmál

http://www.visindavefur.hi.is/svar.asp?id=958 miltisbrandur af Vísindavefnum


Jarðvísindi:
http://ssdoo.gsfc.nasa.gov/education/lectures/magnetosphere/index.html um lofthjúpinn
http://www.bradley.edu/las/phy/solar_system.html sólkerfið
http://aa.usno.navy.mil/data/ upplýsingar um sólmyrkva ofl.
http://www.rt.is/ahb/astro.html um stjörnusjónauka ofl.
http://www.nasa.gov/home/index.html NASA Bandaríska geimferðastofnunin
http://www.fourmilab.ch/yoursky/ stjörnukort

Ýmislegt:
http://www.ismennt.is/vefir/raungreinar/isaacnewton.htm æviágrip Newton
http://inventors.about.com/mbody.htm um uppfinningamenn
http://web.jjay.cuny.edu/~acarpi/NSC/home.htm vísindaleg aðferð ofl.
http://school.discovery.com/clipart/category/scie1.html myndasafn

http://www.hi.is/~jsa/Upprifjun10b.doc upprifjunarhefti fyrir 10. bekk

Stærðfræði:
http://www.aplusmath.com/ leikir og fleirra sniðugt

Kennaradót:
http://www.eduware.com/ prófahugbúnaður

Tenglasafn Njarðvíkurskóla http://njardvikurskoli.is/skoli.htm
http://personal.baker.edu/web2/cdavis09/roses.html leikur sem ég er að verða klikkuð á