
sunnudagur, apríl 12, 2009

fimmtudagur, apríl 09, 2009
Ég er núna á Íslandi í stuttu páskastoppi, kom sunnudagskvöldið 5. apríl. Búin að gera helling á stuttum tíma:
- fara með pabba í lónið
- Fara i afganga til nöfnu fermingarstúlku og gefa henni forláta skartgripaskrín
- syngja í Singstar með nöfnu og spila Phase10
- drekka kaffi með Sollu
- hitta Kennaraháskólakórsvinkonur, Völu og Gústu hjá Helgu Guðrúnu
- hossa Gabríeli Veigar og spjalla við Kristínu Hrönn, hitti líka Lilju og Bergþóru þar
- elda grjónagraut og slátur fyrir strákana
- spjalla við Guðbjörgu og Bjössa
- ganga hring um Keflavík með Írisi og Erlu
- ræða heimsmálin við pabba
- fá hamborgara og spjalla við Möggu
- fara með Olsen til Jóns
- fara í bankann
- kjósa
- leika mér í nýju tölvunni minni
Nóg að gera, meira seinna Svava
miðvikudagur, apríl 08, 2009
Because the world is round it turns me on, because the wind is high it blows my mind, because the sky is blue it makes me cry......
Frábært að enda þessa góðu mynd með þessum texta og lagi. American beauty er mynd sem blows your mind, frábært handrit og með þessum líka flottu leikurum. Kevin Spacey er bara trygging fyrir góðri mynd. Uppáhaldssetningar; Spectacular og You are so busted....
Horfði líka á What's eating Gilbert Grape, mynd sem er svosem ágæt á sinn hátt. Góður leikur og fínn söguþráður. Mynd sem skartar að öllum líkindum þyngstu leikonu heims.
Þessi gagnrýni var í boði Gunnars Halldórs
fimmtudagur, apríl 02, 2009
Nei ekki alveg svona rólegt, vorið er komið, páskaliljur og krókúsar út um allt. Svo erum við að verða vitlaus á Ebay, búin að kaupa súkkulaðibrunn, ísvél og tölvu. Það er ofaná tölvuna sem ég keypti beint frá Dell, gamla góða Acer vélin mín gengur enn en ég býst alltaf við að það kvikni í henni einn góðan veðurdag. Allavega eru nýju vélarnar að gera mig klikkaða því það gengur eitthvað illa að tengjast netinu í þeim, finn út úr því með þrjóskunni.!
Ég er að fara á klakann á sunnudaginn.
Námið............. veit ekki mér skilst að maður viti aldrei, það er svo allt öðruvísi að vera einn að hamast við sitt project, leiðbeinendurnir segja að ég sé að "making good progress", er núna að undirbúa að verja rannsóknaráætlunina. Það sem er aðallega að pirra mig er að mér eru takmörk sett í orðafjölda svo ég er að skera niður það sem ég skrifaði í haust.
Annars er spurningalistinn minn opinn, komin um 80 kláruð svör, vildi samt fá fleirri úr stóru skólunum á Reykjavíkursvæðinu, svo er einhver slíkur les...svara takk. Frábært samt hvað það eru komin mörg svör.
Einn í skrifstofunni minni var að fríka út í dag eftir slæman fund og fann þá þetta http://www.phdcomics.com/comics.php, vildi helst hætta, en eins og Charles vinur minn segir "This PhD thing is no simple thing" ...... hann er samt að klára gott að sjá að þetta tekur allt enda.
fimmtudagur, mars 12, 2009
Fengum bréf um að það væri búið að fresta tónleikunum í Sheffield sem áttu að vera í dag til 5 maí vegna þessa "unglambið" hún Tina væri komin með flensu eina og lesa má hér.
Þannig að við verðum bara að bíða smá tíma í viðbót.
sunnudagur, mars 08, 2009
föstudagur, febrúar 27, 2009
Við verðum hér; http://www.cavecastlehotel.com/home.php um helgina á þorrablóti Íslendingafélagsins í Hull. Það er að vísu komin Góa og Þorrinn búinn, en ætli ástæðan fyrir þessu sé ekki tímamunurinn. Vonandi fáum við svona stórt rúm með himnasæng eins og þeir sýna á heimasíðunni sinni, og vonandi gefur heimasíðan sanna mynd af þessu hjá þeim. Jæja við sjáum hvernig þetta verður vonbráðar. Hafið góða helgi. Kveðja frá Leedsurunum.
þriðjudagur, febrúar 24, 2009
Á fimmtudeginum fórum við öll til York, þar stóð yfir Víkingahátíð og mikið líf á götunum eins og myndin sýnir. Meiningin hafði verið að fara í víkingasafnið en þar var heillöng röð svo við fórum í York Minster, ég er að koma þar í 5 sinn held ég en er alltaf jafn impressed og sé eitthvað nýtt. 
Á föstudeginum var lífinu tekið með ró, ég prentaði út ritgerðina og skilaði. Hörður prófaði að fara í klippingu in the Hood, þau heimsóttu Thackray Medical Museum og þau versluðu í matinn og elduðu, ekki amalalegt að fá svoleiðis gesti.
Um kvöldið lá leiðin í The Birdcage, næturklúbb með drags/kabarettshówi, alveg brjálæðislegur hávaði svo söng í eyrunum á okkur fram á næsta dag. Showið var nú bara svona lala, dónaleg dragdrottning sem mimaði allt og gerði grín að gestunum, en okkur fannst nú líka eiginlega jafn gaman að horfa á þá, Englendingar kunna greinilega að skemmta sér þegar þannig stendur á. Þarna var ein að halda upp á sextugsafmælið með fjölskyldunni, nokkur afmælispartí enn og gæsapartí og fullt af liði í grímubúningum. Showið var bara líka eitt atriði í einu og svo flykktist liðið á gólfið þess á milli.
Á laugardeginum byrjaði fótboltaæðið, ég hef alltaf stefnt að því að fara á einn leik á Elland Road, leikvelli Leeds Utd. þetta var hin ágætasta upplifun en skítakalt. Það voru 20.371 manns á vellinum og Leeds vann 2-0.
Á sunnudeginum var svo farið á alvöruleik eins og Hörður sagði með Liverpool-Man. City, en hann er mikill aðdáandi og naut sín alveg í botn eins og hægt var svona lasinn eins og hann var allan tímann. Við Silla fórum á Bítlasafnið og góðan rölt um bæinn fylgdumst með stöðunni í gegnum glugga pöbbana fórum einu sinni inn og spurðum einhverja strákaorma um stöðuna og þeir urðu half hvumsa en þá var Liverpool undir en þeir náðu að jafna og þannig endaði.
Á milli allra þessara ferða höfðum við það gott heima og elduðum góðan mat og við þökkum Sillu og Herði fyrir góða samveru. Myndir má sjá á http://www.facebook.com/album.php?aid=61055&id=696749115&l=94fa3
miðvikudagur, febrúar 11, 2009

Ég átti afmæli í gær, það gerist nú víst einu sinni á ári. Gunnar vakti mig upp með morgunmat í rúmið, og fjóra pakka. Peysa, baðbombur, róman ( sem má ekki lesa fyrr en ritgerðin er búin) og rafdrifnar salt og piparkvörn, hann sagði nú að það væri alveg eins handa honum en það var sko í góðu lagi því þetta var allt svo flott. Svo fékk ég símtöl frá Huldu og Bjarti, og grilljón kveðjur á Facebook. Og Gerður sendi pakka gegnum Amazon, hún er sko orðin tæknivædd, og víst annar á leiðinni enég er alsæl með handáburðinn frá henni, ekki veitir af á svona gamlar hendur ! Við ákváðum að fara ekkert út fyrr en við fáum góða gesti í næstu viku þá verður sko farið út.
Annars leiddu öll þessi gjafakaup hans Gunnars til kostulegrar uppákomu. Hann sækir mig alltaf í tónlistarskólann og bíður yfirleitt fyrir utan þegar ég kem út. En nú síðast beið ég og beið og hrindi í alla síma og náði bara ekkert í hann. Svo ég skelli mér í strætó til að fara heim og ekki vildi betur til en að ég fór í vitlausan strætó, var alltaf að vona að hann beygði svo og færi með mig heim en hann hélt bara áfram út í vitleysuna, ég spurði samferðafólkið ráða og var ráðlagt að fara úr vagninum og taka svo tvo heim. Ég fór
úr vagninum en leist ekkert á að bíða og bíða í rigningu og Gunnar kannski fótbrotinn í stiganum heima, náði mér í leigubíl og sagði leigubílstjóranum farir mínar ekki sléttar, hann var einna helst á því að karlinn væri bara sofandi! Þegar ég svo kem heim er allt slökkt og enginn bíll og.......... ég lyklalaus, hafði gleymt þeim í skrifborðinu í skólanum. Til allrar hamingju renndi Gunnar uppað þar sem ég stóð og hugsaði málið. Hann var úrlaus og símalaus, hafði spurt fólk hvenær verslunarmiðstöðin lokaði og sá að þetta yrði í lagi, endaði þar í matvöruverslun en þær eru auðvitað oft opnar lengur svo hann bara valdi lauk og epli í mestu makindum á meðan ég var í þessum óförum.laugardagur, febrúar 07, 2009
Mesti snjór í 18 árÉg er hreinlega farin að velta því fyrir mér hvort við Gunnar höfum svona sterk áhrif, fyrst kemur jarðskjálfti, ekki gerst í manna minnum, svo mesti snjór í 18 ár hvað verður næst, eldgos?
Annars er snjórinn nú minni hér en sunnar í landinu, við höfum auðvitað gaman að þessu, skólar lokaðir, allt ófært fólk kann hvorki að ganga né keyra í smá föl ! Fyndnast finnst mér samt að sjá fólkið með regnhlífar í snjókomu.
Lífið gengur sinn vanagang, ég læri, Gunnar skutlar mér, verslar og eldar. Hann er líka byrjaður á enskunámskeiðum og er alsæll þar, seinna í mánuðinum fer hann á námskeið í stafrænni ljósmyndun, bæði að læra á græjuna sem ég taldi að er með 27 tökkum! og svo að vinna með myndir.
Ég er núna að hamast við aðferðafræðiritgerð, þá seinni og upplifði í fyrsta sinn í gær þessa tilfinningu sem víst allir doktorsnemar fá með tímanum að taka fram úr leiðbeinendunum og vita meira en þeir á einhverju sviði, ekkert merkilegt svo sem, sem ég komst að en gaman samt.
Meiri snjómyndir hér:
http://www.facebook.com/album.php?aid=56449&l=18f09&id=696749115
þriðjudagur, janúar 27, 2009
Ráðherralista Sf. og VG.
77 ummæli
Grimmur 26. janúar, 2009 kl.20.50
"jesús minn, nú pantar maður flug út, aðra leið...Er þetta liðið sem ætlar að takast á við Gordon Brown og skapa trúverðugleika gagnvart erlendum aðilum...Við getum alveg eins valið fólk af handahófi út á götu í Sandgerði það kæmi miklu betur út ".
OG Svava sagði "hvers á fólkið í Sandgerði og Æsufellinu að gjalda"
HAHAHAHAHAHAHAHA
laugardagur, janúar 24, 2009
Ég kom aftur til Leeds 12. jan eftir annasaman tíma á Íslandi, jólin og ármótin með öllu sem því fylgir, reyna að vera mamma smá og elda handa strákaormunum sem líkaði það bara vel, allavega Jóni, Pétur yfirgaf okkur þegar internetið lá niðri um tíma.
Svo var ég að prufukeyra spurningalistann fór og hitti 10 kennara sem prófuðu hann fyrir mig, frábært að fá hjálp hjá þeim öllum. Svo sat ég við tölvuna að reyna að skrifa ritgerðir með litlum árangri, tíminn alltof sundurslitinn, var líka alltaf að skjótast að sýna íbúðirnar okkar báða, tókst að leigja mína en sú í Fálkahöfðanum er ennþá laus. Svo seldi Gunnar bílskúrinn og einn dagur fór í að flytja dótið hans í skúrinn á Hringbrautinni.
Nú hefur gengið betur að vinna og ein ritgerð tilbúin og búin að fá frest á hina fram til 20. feb.
Svo svona til að halda til haga hvað maður getur verið klikkaður koma tvær sögur, frá þessari viku:
-ég er á síðustu stundu að mæta á kóræfingu stend í lyftunni og ýti og ýti á takkann og ekkert gerist hurðin bara helst opin, vörðurinn kemur og segir ´it won´t work this way love, you are on ONE and you are pressing ONE'
- ég geng að bílnum, hugsa ég set bara dótið mitt í aftursætið hér bílstjóramegin, það er hægra megin, geri það geng svo kringum hann sest inn vinstra megin með lykilinn tilbúinn...... en ekkert stýri þar... ¨!
Sandhya vinkona mín var hjá okkur núna í nokkra daga, búin að skila sínu húsnæði en flugið ekki strax, hún er núna farin til Indlands, svo nú eru bara tvær eftir sem byrjuðu með mér í mastersnáminu.
miðvikudagur, desember 31, 2008
Ég er háftvístígandi hvar ég eigi að halda áfram að birta myndirnar mínar, finnst gaman að hafa þær á Picasa en hugsa að fleirri skoði þær á Facebook ? Hvað finnst ykkur.
Allavega núna eru þær komnar á Facebook hér : http://www.facebook.com/album.php?aid=49386&l=7e560&id=696749115
Þetta er úr þrem boðum. Aðfangadagur með Möggu og hennar strákum, Jóladagur með Guðbjörgu og svo svakapartý með öllum hjá Gerði þar sem alltof mikill matur var á boðstólum, við spiluðum actionary þar sem margir fóru á kostum og sjá mátti húsmóðurina velta um á gólfinu leikandi rúllupylsu. Mitt lið var reyndar meira frammi að reykja en inni að leika svo ekkert gekk, ætla að hafa það í huga næst þegar ég kýs í lið. Svo var dansað og sungið og mikið stuð.
Í kvöld erum við svo hjá Iðunni, með Möggu lika og allir okkar krakkar, stelpurnar voru reyndar hjá okkur á annan, og Bergþóra búin að vera meira og minna hér. En mínir strákar voru á aðfangadag hjá pabba sínum og hafa svo verið að vinna og bauka við sitt og lítið sést.
Svava
laugardagur, desember 27, 2008
Sendum engin jólakort í ár en þökkum kærlega þau sem okkur hafa borist og lofum að standa okkur betur næst.
Erum búin að hafa það svaka gott, á aðfangadag hjá Möggu, Guðbjörgu á jóladag og Gerði í gær. Erum núna hjá Herði og Sillu og ég fékk aðeins að nota tölvu, netið bilaði hjá pabba og við erum öll búin að vera hálf vængbrotin yfir því en Pétur verstur, svo að hann fór aftur með tölvuna í kjallaraherbergið sitt ! Vona samt að þetta komist í lag og hann komi aftur!
miðvikudagur, desember 24, 2008
Gunnar kom á klakann í gær, við fórum að hitta fólkið hans og dreifa pökkum, ég varð nú bara smá upp með mér þegar Kristín Hrönn rétti mér Gabríel Veigar og spurði hann hvort hann vildi fara til "ömmu Svövu" sko ég er amma :) Fórum með stelpurnar í bæinn aðeins að ná í smá jólafíling, ætluðum á Lækjarbrekku en lögðum ekki í skötulyktina og enduðum á Kaffi París sem var fínt.
smám saman fór mamma að gera ráð fyrir smakkinu og sjóða meira en nú er svo komið að pabbi býður okkur öllum í hangikjöt á Þorlák.fimmtudagur, desember 18, 2008
![]() |
| Ísland desember 2008 |
Ég get nú ekki verið eins heimspekileg og Gunnar er greinilega að verða þarna einn úti í Leeds. Ég er búin að koma mér vel fyrir hjá pabba, og Jón og Pétur líka. Þeir þrír njóta þess vonandi að ég eldi smá fyrir þá.
Ég ætti nú að vera að læra meira en einhvernveginn margt sem truflar, er samt ekki alveg á meltunni, er búin að :
-setja upp spurningalistann minn og prufukeyra einu sinni.
-Lesa slatta og skrifa smá.
- sýna Fálkahöfðann,
- sýna Hringbrautina,
- fara á tónleika í kirkjunni, fjórir kórar og einsöngur rosa flott
- fara á tónleika hjá söngdeildinni, sakna þeirra allra.
- fara í heimsókn í Heiðarskóla
- fara til Guðbjargar
- setja upp jólaseríur úti með Jóni
- fara í saumaklúbb og búa til konfekt
- sjóða ýsu, gera pestopasta, plokkfisk og hakk í ostrusósu
- moka tröppurnar x4
Og svo kláraði ég bókina "The Curious incident of the dog in the night time" alveg meirihátta bók í alla staði, innsýn í líf drengs með Asperger heilkenni og ævintýri hans. Heyrði fyrst um þessa bók á námskeiði fyrir stærðfræðikennara og hún er full af skemmtilegri stærðfræði er svona smákrimmi annan þráðinn en samt ekki.
kv. Svava
miðvikudagur, desember 17, 2008
mánudagur, desember 15, 2008
föstudagur, desember 12, 2008
jólagjöfunum í skip, þægilegt að vera ekki að ferðast með of mikið, svo ég er sko búin að versla og pakka inn svotil öllum jólagjöfum. Svo á laugardeginum fórum við til Lincoln á jólamarkað í kastalanum. Voðalega huggulegt fórum bara með lestinni og ráfuðum um og keyptum ekkert, nema jólaglögg, jólabjór, og strútborgara ! 
Minningargrein Sigrún Guðný Guðmundsdóttir
(Birtist í Morgunblaðinu 7. desember)
Í mannmörgu heimili var nóg að gera, við bökuðum flatbrauð og kleinur og úrbeinuðum folöld, tókum slátur og suðum sultu og eyddum við það mörgum góðum stundum í eldhúsinu. Þá ræddum við heima og geima, við skiptumst á skoðunum og ég fann þá stuðning hennar á þægilegan hátt því hún var ekki að skipta sér af að óþörfu. Við áttum líka sameiginleg áhugamál, Sigrún hafði gaman af tónlist og spilaði á gítar og söng svo hún kenndi mér vinnukonugripin og við sungum saman. Hún las mikið og hafði bæði gaman af því að ræða við mig um krimma og rómana og svo að lesa Rasmus Klump fyrir barnabörnin. Það var því frábært þegar hún fór að vinna í bókasafninu og vera í miðri hringiðu bókanna.
Strákunum mínum var hún besta amma, þeim þótti alltaf gott að koma til Sillu ömmu, vissir um að þar væri alltaf tekið hlýlega á móti þeim, svo vel að Jón minn bauð vinunum líka í kaffi, vitandi að þeir fengju allir eitthvað gott í gogginn. Þegar strákarnir fengu að gista mátti panta pizzu en oftar en ekki völdu þeir frekar hafragraut, ekta ömmugraut með hunangi. Hún var ávallt stolt af barnabörnunum en ég fór nú samt hjá mér þegar hún reif Pétur minn úr sokkunum til að sýna gestum hvað hann væri nú með stóra og myndarlegar fætur.
Sigrún hafði skoðanir á flestum hlutum og lét til sín taka ef með þurfti, starfaði bæði með Verkalýðsfélaginu og í bæjarpólitíkinni. Hún vildi veg kvenna sem mestan og hvatti mig óspart að standa fast á mínu, hvað sem ég tók mér fyrir hendur. Dýrmætasti lærdómurinn sem hún gaf mér var að gefast ekki upp sama hvað á móti blési, heldur takast á við erfiðleika með jafnaðargeði og þrautseigju . Hún glímdi alltaf við slæma fótinn sinn en lét það ekki stoppa sig í neinu og það var aðdáunarvert hversu samviskusamlega hún gerði æfingarnar sínar, enda gátu þau Guðmundur notið lífsins lengi við ferðalög og að sinna garðinum og fjölskyldunni.
Ég kveð Sigrúnu með söknuði og þakklæti fyrir að hafa átt hana að og vinskap hennar.
Kæri Guðmundur, börn, barnabörn og tengdabörn bestu samúðaróskir, megi Guð vera með ykkur .
Svava Pétursdóttir
Leeds
miðvikudagur, desember 03, 2008
Nei ekki alveg en það var samt afsökun einnar sem kom ekki í tíma í dag! Hún býr reyndar við einvern sveitaveg og það var hressileg hálka á vegum í morgun þar sem ekki var búið að salta. Það er búið að vera skítakalt úti og slydda í gær, spáir snjó á morgun og fjölmiðlar tala ekki um annað. Þurftum að skafa bílinn í gær og í dag, ekki gerst áður, áttum enga sköfu og notuðum pottasleikju og spaða !!!
sunnudagur, nóvember 30, 2008

Meistaramót UMSK í sundi verður haldið í Sundlaug Kópavogs nú um helgina. Mótið stendur yfir bæði laugardag og sunnudag og hefst keppni báða dagana kl. 9:30. Tæplega hundrað keppendur hafa skráð sig til leiks.
miðvikudagur, nóvember 26, 2008
Held ég þurfi líka að segja hvað ég er ótrúlega heppin, ég er alveg orðin fordekruð, er keyrð í skólann, svo er verslað fyrir mig og eldað og ég þarf bara að halda mér að verki við námið. Lucky me :) Takk, takk, takk, takk, takk Gunnar minn :)
sunnudagur, nóvember 23, 2008

Tónleikar og dutyful husbands!
laugardagur, nóvember 22, 2008
Gunnar Halldór er orðinn norskur, allavega fór hann í klippingu í gær og sagði rakaranum að hann væri norskur, nennti hreinlega ekki að fara í gegnum alla umræðuna um kreppu og læti.
fimmtudagur, nóvember 20, 2008
Computer says NOSvava keypti sinn miða í ágúst en ég fyrir nokkrum vikum. Áætlun Svövu er 12 desember til Íslands og 12 janúar til Englands aftur (hún þarf að vinna á Íslandi vegna doktorsritgerðarinnar), en áætlun mín er 22 des. til Íslands og 5 janúar aftur út. Núnú við fáum boð um að hringja á skrifstofu Icelandair í ákveðna konu (segjum Anna) þar vegna þess að búið væri að fella niður flugið þann 12 desember. Þannig að ég hringdi í gær og “fékk” að hlusta á tónlist í rúman hálftíma og bað síðan um að “Anna” hringdi í mig, vegna þess að mér var sagt að hún væir upptekin. Núnú ekkert gerðis þann daginn, nema hvað að ég gaf aftur upp símanúmerið mitt eftir hina “lögbundnu tónlistarhlustun”. Í dag var ég orðinn svolítið fúll vegna þessa og hringdi aftur og fékk “eyrnanauðgun” og síðan samband við starfsmann sem sagði mér að Anna kæmi klukkan 1100 OG þá kæmi hún til með að hringja, eftir hádegi var ég orðinn mikið fúll ;( og hringdi og fékk “minn skammt” í eyrað og síðan manneskju sem sagðist ætla að hringja STRAX í mig, en eftir smá bið og enginn hringdi (tékkaði t.d. hvort það væri ekki hægt að hringja í símann minn) þá hringdi ég í “tónlistarstöðina” og fékk síðan að tala við starfsmann sem var starfi sínu vaxinn (það sauð á karli). Svövu miða var breytt þannig að hún kemur til með að fljúga í gegnum London 13 des. (það er líka búið að fella niður flugið þann 15 des) og verður hún því að greiða fyrir lestarferð til London, því mér var tjáð að Flugleiðir greiddu EKKI. Ég spurðist þá fyrir hvort ég gæti breytt mínum miða frá 22 des í 19 des, “JÚjú það er hægt, en það kostar 65 þúsund”, breytingargjald og svona gjald og svona gjald. Ég RÆDDI það við hana hvort það væri nú ekki óréttlátt, að þegar ÞEIR fella niður flug og við verðum fyrir kostnaði, töfum og leiðindum þá greiða ÞEIR ekkert en þegar við biðjum um smá leiðréttingu í sambandi við þetta þá eigum VIÐ að greiða helling. Hún sagðist ekkert geta gert neitt því að svona væru “reglurnar”, ég sagði nú vita allt um það að þetta væri ekki spurning að tölvan segði NEI, heldur að einhver ábyrgur aðili kæmist að sanngjarni niðurstöðu.
Það fór hellings tími hjá henni í þetta, nokkur símtöl í mig og aðra, og hringdi siðan í mig og sagði hróðug að ég gæti fengi þessa breytingu fyrir 26 þús. (hmm tölvan búin að skipta um skoðun), ég þakkaði pent fyrir og sagðist eingöngu vera tilbúinn að borga breytingargjald (10 þús), þannig að ekkert varð úr þessu og ég kvaddi hana með þeim orðum að ég vonaðist að Hannes Smárason fengi áfram gjaldfrjálsa farmiða með Icelandair, hann ætti það svo sannarlega skilið.
Kveðja
Gunnar Halldór
PS
Þetta vídeó er gott áður en maður ræðir við starfsfólk tónlistar-flugfélagsins;
þriðjudagur, nóvember 18, 2008
Við leigðum um helgina sendiferðabíl og fluttum dótið hennar Höllu til Immingham í skip, ég keyrði þar sem allir reikingar eru á mínu nafni og sanna þarf heimilisfang til að leigja bíl eins og annað. Það gekk ljómandi vel og ég var farin að hugleiða sendibílakstur sem annan starfsvettvang, en á leiðinni að skila bílnum villtist ég gleymdi að taka díselolíu og svo loks þegar ég var kominn í hlaðið á leigunni hætti ég að vanda mig og keyrði á vegrið við bensíndælurnar og reif úr brettinu lófastórt stykki, nokkur hundruð pund í vaskinn arrrrggggggg........... ætla bara að halda áfram að vera menntakona.
miðvikudagur, nóvember 12, 2008
"I suppose the haddock-shaped piece of lava with every new account was probably a clue."
sunnudagur, nóvember 09, 2008
laugardagur, nóvember 08, 2008

föstudagur, nóvember 07, 2008
já það kostaði 6 pund fyrir okkur í sund eða 1200 kr! og engi heitir pottar.
Bættum það svo upp með hálfskrýtnu ´take away´ kjúklingabitar, salat, franskar og þrælsterk chillisósa allt í einni hrúgu.
fimmtudagur, nóvember 06, 2008

Gunnar Halldór
sunnudagur, nóvember 02, 2008
HermitarnirEitthvað hlýt ég að geta sagt í fréttum , en varla þó, við erum að verða óttalegir "hermitar" hittum fáa nema hvort annað, í vinnuherberginu mínu eru 10 skrifborð en flesta daga erum við bara tvö þar ég og Charles sem er frá Kenya og með einbeittustu mönnum sem ég hef séð. Svo koma hinir í smá stund vinna smá og prenta og hitta kennarnana og biðja, já biðja, einn daginn sá ég bara í bossann á stöllu minni þarna og hélt fyrst að hún hefði misst eitthvað undir borð en við nánari athugun var konugreyið bara að biðja.
miðvikudagur, október 29, 2008
Gabríel VeigarÞá er litli afastrákurinn búinn að fá þetta fallega nafn. Hann var skírður á sunnudaginn og dafnar vel. Drekkur eins og herforingi og stækkar með hverjum deginum. Enda veit hann að hann þarf að vera duglegur að drekka og síðan að borða ef hann ætlar að verða eins stór og sterkur og afi sinn. Að sjá hann núna og hugsa til þess að stelpurnar mínar voru bara svona smábörn fyrir nokkrum árum síðan, kemur manni í skilning um hvað tíminn æðir áfram á ótrúlegum hraða.
sunnudagur, október 26, 2008
T.d. hefur í dag verið fjallað mikið um mótmæli gegn valdhöfunum á Íslandi í fréttum BBC og öðrum sjónvarpstöðvum ásamt umfjöllunar á vef sömu aðila. En þegar ég fer á íslenskar fréttaveitur þá er lítið sem ekkert fjallað um þetta, í besta falli gert svona góðlátlegt grín að þessu og í Ríkissjónvarpinu var þetta sjötta frétt á undan t.d. þriðju frétt sem var um að fellihýsi hafi eyðilagst á Kjalanesinu. Þetta segir allt sem segja þarf, fellihýsið er mikilvægara en mótmæli fólksins, Hrunadansi Íslands á öllum sviðum þjóðfélagsins. Annað er það hvernig umfjöllunin er öðruvísi í UK. Hérna er ávalt talað við og tekið dæmi um hvernig þetta mál snertir "venjulegt" fólk. Rætt við þá sem málið varðar, talað semsagt við "grasrótina" En á Íslandi er næstum því eingöngu bara viðtöl við forstjóra stórfyrirtækja, sjórnmálamenn, fulltrúa atvinnulífsins og kannski einhvern forkólf atvinnulífsins. Í frétt BBC var t.d. viðtal við íslending um það hvernig þessi krísa kæmi við hann og hvað viðkomandi hefði að segja um þessi mótmæli. En á Íslandi ekki eitt viðtal þar að lútandi. Þetta er bara eitt dæmi af mörgum sem ég hef séð á þessum mánuðum sem ég hef búið hérna í UK.
föstudagur, október 24, 2008

sunnudagur, október 19, 2008

föstudagur, október 17, 2008
Samkvæmt mínum útreikningum er nýi framhaldsskólaneminn nú að vera orðinn 16 ára, hún er í Menntaskólanum í Kópavogi og passar svo börn á líkamsræktarstöð, dugleg stelpa :)
![]() |
| From Gamlárskvöld, New years eve |
þriðjudagur, október 14, 2008
laugardagur, október 11, 2008
Það er ekkert smá afmæli að eiga að baki 90 ár. Bestu hamingjuóskir með daginn og vona að allir skemmti sér vel í partýinu þínu á sunnudaginn.
Vil kannski ekki vera að skrifa nein leiðindi á svona flottum degi, en þrátt fyrir kreppu hef ég það allt í lagi, fólk sem ég hitti hefur meiri áhyggjur að það sé í lagi með mig en hvað Íslendingar séu miklir hryðjuverkamenn. Lifi bara eins or kirkjurotta og fékk reyndar þær góðu fréttir að ég hefði fengið smá styrk frá skólanum svo það eru aðeins minni skólagjöld sem bíða greiðslu. Þarf bara núna að hætta að lesa fréttir og koma einbeitningunni aftur í gang.
mánudagur, október 06, 2008
Best að henda inn nokkrum línum, það kostar ekki neitt og það er það eina sem maður leyfir sér þessa dagana ! Er i hálfgerðu losti yfir þessu gengi og Gunnar hlær eins og vitleysingur og segir að annað sé ekki hægt. Í janúar vorum við svo heppin að vera nýbúin að borga skólagjöldin áður en gengið fór af stað en nú er allt farið til andskotans ( afsakið orðbragðið) og ég þarf að borga skólagjöldin á næstu dögum.
pínu pinu bót í máli að ég er búin að fá vinnu í bókasafninu 4 tíma á viku næ allavega að vinna fyrir strætógjaldi! Fyrsti dagurinn í dag.
Nú eru afmælin á fullu Kristín Hrönn varð 20 ára í gær, hjartanlega til hamingju ef þú lest þetta, Skapti Ben var líka í gær orðinn 13 ára og Hulda systir er , hey hún á hálfstórafmæli var ekki búin að átta mig á því en hún er 35 Til hamingju með daginn
PS ætli Gunnar sé ekki svona á svipinn yfir genginu, eða óáfenga bjórnum sem hann fékk þarna um daginn!
mánudagur, september 29, 2008
föstudagur, september 26, 2008
sunnudagur, september 21, 2008
Ég var bara ánægð að geta selt nokkra miða, Gunnar kom auðvitað, Paula nágranni okkar frá Stanmore Grove kom og Hulda og Les líka, við skelltum okkur svo í síðbúinn kvöldverð.
Í morgun eftir gestamorgunverð með lummum og baconi steðjuðum við á Thackray Museum sem er um heilsu og lækningar hér í Leeds frá 18 öld, mikið erum við heppin að vera uppi núna en ekki þá. Svo uppí Roundhay Park enda veðrið dásamlegt.
Svo fékk ég símtal áðan, frá Leeds College of Music og ég fæ söngtíma í vetur, jibbí !
Skriffinnskan í skólanum rúllar líka áfram og búin að fá bréf með formlegu boði frá þeim, en get ekki innritast fyrr en 1.10 meira bullið.
Við Gunnar fórum í 'white wine and nibbles' í skólanum á föstudaginn í tilefni þess að 2 af 3 náttúrfræðistofunum voru teknar í gegn í sumar, kannski líka að þau eru með nýja unga hressa konu sem nennir að skipuleggja svona. Allavega þá hélt ég að þetta yrði stutt og pent en endaði með prófessornum mínum fyllandi glasið mitt endalaust og setið lengur en áætlað var, bara gaman en kannski ekki það skynsamlegasta daginn fyrir tónleika.
miðvikudagur, september 17, 2008

sunnudagur, september 14, 2008
Ég held ég hafi áður skrifað um fíkn mína að horfa á Friends og kannski líka að þeir sem ég umgengst smitast fljótt.
Þegar ég horfði fyrst á þættina horfði Pétur oft með mér og síðasta vetur Bergþóra, í sjónvarpi er það oft einn sponsor sem á auglýsingarnar fyrir og eftir ákveðinn þátt, hér er það Radox freyðibað sem sponsorar Friends og Bergþóra lærði fljótt 'lift your mood with Radox and Friends' og endurtók hann alltaf með tilþrifum.
Nú er það Gunnar greyið listaspíran sjálf sem er farinn að sogast inn í Friends heiminn, getur örugglega bráðum farið að geta bleiku spurningarnar í Trivial og orðið þá þungur viðureignar. En svo ég klári fyrra efni þá er 'radox-friends' frasinn það sem minnir okkur helst á Bergþóru þessa dagana þar sem Gunnar situr og horfir á Friends með mér, þá kemur annar frasi í huga frá íslenskum fjölmiðlamanni 'sé ég tár á hvarmi?'
Annars heyrist okkur á Bergþóru að hún plumi sig vel í Kópavogsskóla, er mest ánægð með að vera í allskyns fögum eins og textilmennt og íþróttirnar séu miklu betri. Englendingar setja mest trukk í 'the core subjects' ensku, stærðfræði og náttúrufræði, listum og íþróttum er ekki gert hátt undir höfði og stýring samræmdra prófa og obinberra úttekta 'Ofsted' alsráðandi.
Bergþóra hefur samt ekki mikið getað verið með í íþróttum undanfarið þar sem hún braut á sér fótinn á hlaupahjóli. Brotið var 'gott' og síðast þegar við heyrðum í henni var hún laus við gifsið svo vonandi kemst hún bráðum í íþróttir og á sundæfingar.
þriðjudagur, september 09, 2008

föstudagur, september 05, 2008
Ferð til fjár (Ålesund)Þegar Svava tók á móti mér á lestarstöðinni í Leeds eftir ferðina til Noregs, var það fyrsta sem hún sagði; "Hvaða villimaður er nú þetta"

Núna eru nokkrir dagar síðan ég kom úr rúmlega hálfs mánaðar ferðalagi til Noregs. Ástæða ferðar minnar þangað var að Bjössi vinur minn hringdi og spurði hvort ég vildi ekki koma og aðstoða hann við að veiða eina ufsagöngu eða svo. Ferðalagið var eftirfarindi og hófst klukkan átta um morguninn, 2 tíma lestarferð frá Leeds til Derby og síðan 40 mín rútuferð til East Midlands Airport og eftir töluðverða bið 2 tíma flug til Gardemoen, Oslo flugvallar og önnur eins bið eftir næturrútunni til Ålesund. Rútan kom klukkan ellefu og ég kom til Álasundar um átta leitið um morguninn eftir þar sem Bjössi tóka á móti mér. Ég fór síðan sömu leið til baka og ódýrasti ferðamátinn var flugið til og frá Ósló (ferðin til East Midlands Airport frá Ledds var einn pakki), svona er þetta nú öfugsnúið stundum í frumskógi flugfargjalda. Leitið og þér munuð finna lögmálið.

Ålesund er virkilega fallegur bær sem var algjörlega endurbyggður eftir að bærinn brann til kaldra kola árið 1904. Bærinn var endurbyggður í Jugendstíl (Art Nouveau) og aðal áhrifavaldur í því var Wilhem keisari sem kom reglulega þangað í sumarfríum sínum og var heillaður af norsku fjörðunum.
Við félagarnir vorum semsagt þarna saman í tvær vikur á ufsaveiðum. Veiðarnar gengu ágætlega og eftir bara 2 daga var ég búinn að vinna fyrir fargjaldinu. Þetta var líka alveg meiriháttar að vera út á sjó og inná fallegum fjörðum og upplifa náttúruna á fullu. Báturinn heitir Cindy og fór vel með mann. Við fengum frá nokkur hundruð kílóum á dag til 1 og hálft tonn eftir einn daginn. Síðan var nú tími inn-á-milli að túristast svolítið, njóta góðs matar og drykkjar. Bara nokkuð gott og einnig var líka gaman að taka þátt í Den Norske Matfestivalen i Ålesund og fl.
Eftir góða ferð til Noregs var nú gott að koma aftur heim í mjúkan faðminn en samt kem ég nú til með að fljúga til Íslands 22 september og stoppa í 3 vikur.
Gunnar Halldór
þriðjudagur, september 02, 2008
Var að garfa í tölvunni og setti slatta af ,, gömlum'' myndum á Facebook. Smellið ef þið viljið kíkja.
laugardagur, ágúst 30, 2008

þriðjudagur, ágúst 26, 2008
Við erum núna búin að vera með teljara á síðunni í næstum ár. Ferlega gaman að fylgjast með umferðinni og heldur manni við efnið að skrifa stundum eitthvað.
Gestir samtals eru orðnir 3022, við sjáum að þetta eru mest sömu ip tölurnar og þekkjum orðið vini og vandamenn. Svo detta inn skrýtnir gestir í gegnum leitarsíður, í morgun kom einn frá Kína var að leita á google á nafni á klaustri í Tíbet sem við höfðum heimsótt, ekki góðar upplýsingar fyrir hann á íslensku. Leitarorðið sem skilar flestum gestum er Tenerife.
Mánudagar fá flesta gesti og gestir eru flestir milli 9 og 10 á kvöldin, sem þýðir að ég ætti að tryggja á sunnudagskvöldum að skella inn helgarpistli :) Well er á leiðinni á bókasafnið tek strætó, rán um hábjartan dag að borga bílastæðagjöld, svo er kóræfing í kvöld :)
sunnudagur, ágúst 24, 2008

Til hamingju með afmælið Iðunn systir, ekki nóg með það að hafa átt afmæli í gær þá skellti hún sér á Bifröst í skóla, er búin að vera að mjólka inn einingar í FS í gegnum árin en nú er sko kominn tími á næsta stig. Óska þér góðs gengis og býð þig velkomna í hóp háskólanema :)
Gerður systir hamast við að klárast sína mastersgráðu nú í september og ég rembist við að lesa, nóg að gera hjá skólakonum.
Nú er afmælisvertíðin sem sagt að byrja í okkar fjölskyldu, sniðugt hvernig þetta er allt á einum árstíma, Soffía byrjaði 2. ágúst, svo Óðinn þann. 10 og er núna orðinn 13 ára, þau fermast 3 núna í vor systrabörn mín, orðið stórt þetta lið. Já og vo eigum við öll afmæli á sjö mánuðum. Bara mágar mínir sem brjóta upp mynstrið og eru í Júní. (verð líka að viðurkenna að ég get ekki fyrir mitt litla líf munað afmælisdaginn hennar Röggu mágkonu en finns það endilega vera einhverntímann um haustið, hressið upp á minnið mitt endilega)

Well, endurheimti bóndann á fimmtudagskvöldið ósköp verður það nú notalegt.
Grasekkjan kveður í bili.
ps. er búin að kaupa mér miða verð á klakanum 12. des - 12. jan.
þriðjudagur, ágúst 19, 2008

sunnudagur, ágúst 17, 2008

Á ég ekki bara að sýna ykkur mynd af fallegu blómi ? Eða hverfinu þar sem við búum ?Núna þegar við búum í þéttbýlinu, þá skilur maður alla þessa almenningsgarða. Fórum um daginn í göngutúr og tókum fullt af blómamyndum.
Ekkert að frétta, er bara heima að lesa og alveg agalega erfitt að halda sér að verki. Bjargar mér að fara út og hitta stelpurnar sem eru reyndar að týna tölunni, farnar heim til Oman, Turcs og Caicos, Kanada ......... sumar búnar að klára og sumir ætla að klára að skrifa heima. Hér eru nokkrar myndir af Leedsvinkonum.
Gunnar var úti á sjó síðast þegar ég talaði við hann búinn að fá 800 kg af ufsa og nokkra golþorska.
þriðjudagur, ágúst 12, 2008
Jæja nú hafa skipast veður í lofti, báðir karlarnir mínir flognir á burt.
Jón fór í gærkvöldi, bara kátur að fara að hitta vinina og kærustuna, búinn að fá nóg af að hanga hér, held að hann hafi samt notið þess að slappa rækilega af.
Bjössi trillukarl í Noregi, vinur Gunnars bauð honum í heimsókn að taka þátt í að fanga eina ufsagöngu eða svo, svo hann verður sjómaður næstu tvær vikurnar.
laugardagur, ágúst 02, 2008
Við erum búin að kaupa og kaupa stöff, það þarf víst þegar maður flytur úr húsi fullu af græjum og í tómt hús. Listinn er svona núna:
þvottavél 60
rúm fyrir gestaherbergi 40
rúm fyrir okkur 200
teketill og brauðrist 24
lök og dýnuhlíf og ruslatunna og skrifborð og uppþvottagrind ofl. ca 50
vorum hagkvæm í innkaupum og keyptum stóru hlutina notaða en í fínu standi.
Er núna búin að skila rannsóknaráætlun og formlegri umsókn er annars lítið að gera í náminu þarf að fara að koma mér í gang aftur.
Íbúðin mín á Hringbrautinni er laus ef þið vitið um einhvern sem vill kaupa eða leigja........
Jón er enn hér, á rúma viku eftir, hann lætur sig hafa þessa útlegð, spilar World of Warcraft og horfir á sjónvarp. Við fórum í gærkvöldi að sjá The Dark Knight, skrítin mynd dark og gloomy miðað við svona hetjumynd.
C U Svava
laugardagur, júlí 26, 2008
- frá flutningum í nýtt hús eigum samt eftir að koma okkur fyrir og mynda almennilega
- frá 'farewell' partýinu sem við héldum fyrir Bergþóru, buðum öllum bekknum, og skátunum, leigðum hoppukastala, grilluðum og mikið stuð.
- í Bergþóru albúmið bætti við myndum úr sundi, skátum og skrúðgöngu með skólanum
- nokkrar myndir í 'krakkar í heimsókn'
- og nýtt albúm frá Blackpoolferðinni.
Erum nú í Grimsby, fórum með dótið hennar BErgþóru í skip og bílinn í viðgerð og skoðun.
fimmtudagur, júlí 24, 2008
Síðan við blogguðum síðast erum við búin að fara til Blackpool yfir eina nótt gistum á einu af mýmörgum litlum hótelum sem eru þarna við ströndina. Fórum í vatnsgarð þar með rennibrautum og fossum mikið stuð. Lilja og Jón fóru í go-kart og við prófuðum traminn sem gengur eftir sjávarsíðunni.
Stelpurnar fóru svo á föstudaginn svo nú og meira seinna.
Höfum einfaldlega ekki haft tíma að blogga
Skrifum fljótlega aftur og ítarlegri fréttir.
laugardagur, júlí 12, 2008
Lítið um blogg núna, búið að vera mikið að gera eða kannski erill.
Bergþóra hefur nú lokið skólagöngu í Leeds, búin að kveðja alla og fékk frábærar umsagnir frá kennara og skólastjóra, líka dásamleg kort frá bekkjarfélögum þar sem stelpurnar tala um bros og létta lund en strákarnir um hæfileika hennar í tæklingum !
Pétur er kominn og farinn. Ég fór með stóra liðið í Alton Towers, stóran tívolígarð með klikkuðum tækjum og fallegu umhverfi, þau keyptu sér hraðpassa til að komast örugglega í öl klikkuðu tækin. Ég prófaði eitt svona sakleysislegt og æpti allan tímann og sá ekkert fyrir hárinu sem fór fyrir andlitið á mér svo það var nóg fyrir mig þann daginn, las bara bók og skoðaði umhverfið í rigningunni.
Það er búið að taka eina verslunarrispu á mann, Jóni sagðist mest yfir því að fá í H&M 3 hettupeysur, skyrtu, 2 armbönd og belti á verði einnar peysu sem hann keypti á ísl í vor.
Fór með stóru krakkana í Royal Armories, þau eru nú ekki beint safnatýpurnar en strákarnir voru samt imponeraðir eins og strákum ber yfir byssum og sverðum.
Já og svo skruppum við öll til Grimsby um síðustu helgi. Fengjum gott að borða eins og venjulega og skruppum á boot sale.
laugardagur, júlí 05, 2008
Brödrene lost og Lilja Björg flugu yfir hafið í gær og eru núna komin til Leeds. Þetta verður eitthvað skrýtið allt saman, Pétur stoppar bara í viku, Lilja í tvær og Bergþóra fer svo með henni alfarin. En Jón er komin í langa útlegð og verður með okkur í fimm vikur og fær þá heiðurinn af því að hjálpa okkur að finna nýtt húsnæði og flytja. Svo skilur hann okkur tvö eftir í kotinu.
Búið að vera dásamlegt veður núna í nokkra daga en grenjandi rigning og þungbúið í augnablikinu.
Ég er búin að skila af mér ritgerðinni sem er eini mælanleg afrasktur annarinnar. Leið svolítið eins og ég væri ekkert búin að vera að gera en þurfti svo að taka þetta allt saman fyrir formlega umsókn um flutning yfir í EdD og þá var það bara heilmikið en ekkert sem klárast vegna flutningsins. Svo er ég að vinna rannsóknaráætlunina, mikið stuð og fékk í gær þær fréttir að vegna efnisins verður annar leiðbeinandinn minn Aisha Walker, hún er prófessor i upplýsingatæknideildinni og verður örugglega styrkur af henni.
kv. Svava
sunnudagur, júní 29, 2008
Það má fullyrða að það hafi verið allt á fullu hjá Bergþóru Sól um þessa helgi. Föstudagskvöldið var að venju undirlagt skátfundi, og síðan ver vaknað á laugardagsmorgni klukkan 7 til að fara á stórt sundmót. Þetta var á sama stað og síðast, yfir 600 áhorfendur og kringum 100 keppendur. Bergþóru gekk mjög vel og bætti tíman sinn í baksundi og skriðsundi um 3-4 sekúndur en "bara" um 1 sekúndu í bringusundi sem er í raun hennar sterkasta grein. Þar sem bringusundið er ávalt fyrsta keppnisgreinin og hún yfir-spennt, skemmir það mikið fyrir henni. Það er svolítið fyndið að sjá hana rétt áður en hún fer uppá start-blokkina, hún getur ekki verið kjurr, hoppar og læti. Eftir fyrsta sundið er hún síðan orðin róleg og einbeitt. Ég veit að hún getur betur í bringunni vegna þess að stelpa sem hún er að æfa með er ávalt á eftir henni í keppni á æfingum, en er svo með betri tíma en hún á sundmótum. Eftir mótið fórum við og sóttum Svövu á kóræfingu og fórum í bíltúr út í sveit. Á sunnudagsmorguninn var einnig vaknað klukkan 7 of farið á brautarstöðina hér í Leeds þar sem 15 aðrar skátastelpur biðu. Flokkurinn fór síðan til Eureka sem er frábært safn fyri krakka, með áherslur á að leika og læra.Skátastelpurnar komu svo til baka með lestinni rétt fyrir fimm og þá var farið strax á sundæfingu sem byrjar fimm. Þannig að það var ánægð og þreytt stelpa sem sofnaði í kvöld og mætir síðan með bros á vör í fyrramálið í skólann. Hún fékk sérstök verðlaun á sal fyrir helgi.
En eins og segir á skjalinu; Bergthora was praised in our Special Assembly for a lovely friendly attitude.............
fimmtudagur, júní 26, 2008
Uppáhalds vefsíða Gunnars er um gengi íslensku krónunnar gagnvart pundi, þetta er svona "love - hate relationship" Fluttum smá pening í gærmorgun, hefðum sparað okkur þó nokkrar krónur að bíða fram eftir degi, en Gunnar var búinn að bíða eftir betra gengi en það virtist ekkert á leiðinni. Vona samt að þetta skáni, svo verður tryggara þegar Gunnar fer að fá laun í pundum sem ekki rýrna reglulega.
miðvikudagur, júní 25, 2008
laugardagur, júní 21, 2008
Gunnar sótti mig til Manchester og þau voru búin að skvera allt til svo mér leið eins og prinsessu.
Ferðin var ósköp fín, svolítið annar bragur en áætlað var en var samt glöð að vera á Íslandi því amma mín lést þremur dögum eftir að ég kom, blessuð sé minning hennar. Svo ég náði að kveðja hana og vera við kistulagningu, útför og hitta ættingja.
Reyndi að hitta sem flesta, en komst ekki yfir allt og vona að ég nái þeim í næstu heimsókn. Fyrri vikan var undirlögð af ráðstefnunni sem var mjög góð, varð til þess að ég gjörbreytti áherslum í komandi doktorsverkefni, alveg sannfærð um að það verði heillaskref.
Svo núna undanfarið er ég búin að vera að vinna í verkefni, skiladagur nálgast óðum, ég gisti hjá pabba sem varð að orði, hva! komstu til Íslands til að læra !
Jón var með mér hjá pabba, hann er núna að vinna við smíðar. Pétur vildi bara vera á sínum stað í herberginu í blokkinni og sækja sína vinnu í Dominos, svo skrapp hann líka á Bíladaga á Akureyri en kom heill heim. Þeir virðast ósköp sáttir við lífið, fannst gott að fá mömmumat nokkrum sinnum.
Já og íbúðin mín er laus til leigu eða sölu, ef þið vitið um einhvern sem vantar nóg pláss fyrir sanngjarnt verð. Er með létt í maganum ef hún stendur auð lengi fer fljótt að hringla í buddunni.
miðvikudagur, júní 11, 2008
Svo var humarveisl og irish hjá Írisi, mikið stuð fórum meðal annars út í skúr með Ómari að hlusta á tónlist á LP - plötum ! Lög sem hann lét Ómar kom okkur uppá á sínum tíma
Njótið ! Og syngið hátt
mánudagur, júní 02, 2008
Stundum verður maður áþreifanlega var við það að maður býr núna í stórri borg með þeim kostum og göllum sem því fylgja. Ég labbaði í skólann í dag og það er kyrrt veður, þá finn ég sko fyrir menguninni þó vinkona mín frá Indlandi hlægi og segi að þetta sé sko ekki mengun.
Hnífaglæpir eru agalega algengir hér í Englandi og varla líður sú vika að ekki gerist eitthvað skelfilegt. Í morgun fannst kona látin af stungusárum heima hjá sér, og barnabarn hennar handtekið. Það sem verra er að hún er þekkt baráttukona gegn ofbeldisglæpum eftir að sonur hennar var myrtur. Það sem gerði þetta áþreifanlegt er að hún bjó við götuna sem við keyrum niður í bæ, og áðan sá ég syrgjendurnar og blómin við húsið. Fréttin er hér.
sunnudagur, júní 01, 2008
Hef aldrei held ég unnið eins leiðinlegt verkefni, um athuganir og viðtöl í aðferðarfræði, við höfðum bara þrjú ritgerðarefni og þetta fannst mér skást. Sit og þykist vinna er reyndar búin að lesa allan fj... um viðtöl og athuganir sem vonandi kemur að gagni á næstu árum.
Fer til Ísland á föstudaginn ! verð þá að vera búin að skila uppkasti og helst fá viðtal um það....
Suðum hangikjötið sem er búið að bíða í frystinum frá jólum, nammi namm. Erum að reyna að tæma frystinn, erum víst að fara að flytja, veit ekkert hvert, Gunnar er með málið í nefnd, vonast samt eftir niðurstöðu fljótlega.
Það rignir mikið, skólinn orðinn tómur allir í grunnnámi farnir burt og eftir sitja alvarlegir doktors- og mastersnemar.
Sé ykkur Svava




