Á fimmtudeginum fórum við öll til York, þar stóð yfir Víkingahátíð og mikið líf á götunum eins og myndin sýnir. Meiningin hafði verið að fara í víkingasafnið en þar var heillöng röð svo við fórum í York Minster, ég er að koma þar í 5 sinn held ég en er alltaf jafn impressed og sé eitthvað nýtt. 
Á föstudeginum var lífinu tekið með ró, ég prentaði út ritgerðina og skilaði. Hörður prófaði að fara í klippingu in the Hood, þau heimsóttu Thackray Medical Museum og þau versluðu í matinn og elduðu, ekki amalalegt að fá svoleiðis gesti.
Um kvöldið lá leiðin í The Birdcage, næturklúbb með drags/kabarettshówi, alveg brjálæðislegur hávaði svo söng í eyrunum á okkur fram á næsta dag. Showið var nú bara svona lala, dónaleg dragdrottning sem mimaði allt og gerði grín að gestunum, en okkur fannst nú líka eiginlega jafn gaman að horfa á þá, Englendingar kunna greinilega að skemmta sér þegar þannig stendur á. Þarna var ein að halda upp á sextugsafmælið með fjölskyldunni, nokkur afmælispartí enn og gæsapartí og fullt af liði í grímubúningum. Showið var bara líka eitt atriði í einu og svo flykktist liðið á gólfið þess á milli.
Á laugardeginum byrjaði fótboltaæðið, ég hef alltaf stefnt að því að fara á einn leik á Elland Road, leikvelli Leeds Utd. þetta var hin ágætasta upplifun en skítakalt. Það voru 20.371 manns á vellinum og Leeds vann 2-0.
Á sunnudeginum var svo farið á alvöruleik eins og Hörður sagði með Liverpool-Man. City, en hann er mikill aðdáandi og naut sín alveg í botn eins og hægt var svona lasinn eins og hann var allan tímann. Við Silla fórum á Bítlasafnið og góðan rölt um bæinn fylgdumst með stöðunni í gegnum glugga pöbbana fórum einu sinni inn og spurðum einhverja strákaorma um stöðuna og þeir urðu half hvumsa en þá var Liverpool undir en þeir náðu að jafna og þannig endaði.
Á milli allra þessara ferða höfðum við það gott heima og elduðum góðan mat og við þökkum Sillu og Herði fyrir góða samveru. Myndir má sjá á http://www.facebook.com/album.php?aid=61055&id=696749115&l=94fa3

































Það má fullyrða að það hafi verið allt á fullu hjá Bergþóru Sól um þessa helgi. Föstudagskvöldið var að venju undirlagt skátfundi, og síðan ver vaknað á laugardagsmorgni klukkan 7 til að fara á stórt sundmót. Þetta var á sama stað og síðast, yfir 600 áhorfendur og kringum 100 keppendur. Bergþóru gekk mjög vel og bætti tíman sinn í baksundi og skriðsundi um 3-4 sekúndur en "bara" um 1 sekúndu í bringusundi sem er í raun hennar sterkasta grein. Þar sem bringusundið er ávalt fyrsta keppnisgreinin og hún yfir-spennt, skemmir það mikið fyrir henni. Það er svolítið fyndið að sjá hana rétt áður en hún fer uppá start-blokkina, hún getur ekki verið kjurr, hoppar og læti. Eftir fyrsta sundið er hún síðan orðin róleg og einbeitt. Ég veit að hún getur betur í bringunni vegna þess að stelpa sem hún er að æfa með er ávalt á eftir henni í keppni á æfingum, en er svo með betri tíma en hún á sundmótum. Eftir mótið fórum við og sóttum Svövu á kóræfingu og fórum í bíltúr út í sveit. Á sunnudagsmorguninn var einnig vaknað klukkan 7 of farið á brautarstöðina hér í Leeds þar sem 15 aðrar skátastelpur biðu. Flokkurinn fór síðan til
Hér má sjá tvær vinkonur; Frankie og Bergþóru og yfirlýsingu sem Frankie skrifaði







