Þorláksmessa
Gunnar kom á klakann í gær, við fórum að hitta fólkið hans og dreifa pökkum, ég varð nú bara smá upp með mér þegar Kristín Hrönn rétti mér Gabríel Veigar og spurði hann hvort hann vildi fara til "ömmu Svövu" sko ég er amma :) Fórum með stelpurnar í bæinn aðeins að ná í smá jólafíling, ætluðum á Lækjarbrekku en lögðum ekki í skötulyktina og enduðum á Kaffi París sem var fínt.Svo lá leiðin til pabba í hangikjötssmakk, þessi hefð okkar byrjaði allavega þannig að hangikjötið var soðiði á Þorláksmessu og allir vildu smakka,
smám saman fór mamma að gera ráð fyrir smakkinu og sjóða meira en nú er svo komið að pabbi býður okkur öllum í hangikjöt á Þorlák.
smám saman fór mamma að gera ráð fyrir smakkinu og sjóða meira en nú er svo komið að pabbi býður okkur öllum í hangikjöt á Þorlák.Tókum líka í spil, kannski smá svindl, alveg eins og jólin séu bara komin hjá okkur.
Einhver sagði sem svo að við værum eins og ítölsk fjölskylda, við vorum víst svo hávær og málglöð.
Hér eru nokkrar myndir í viðbót; http://www.facebook.com/album.php?aid=46622&l=79964&id=696749115




























Það má fullyrða að það hafi verið allt á fullu hjá Bergþóru Sól um þessa helgi. Föstudagskvöldið var að venju undirlagt skátfundi, og síðan ver vaknað á laugardagsmorgni klukkan 7 til að fara á stórt sundmót. Þetta var á sama stað og síðast, yfir 600 áhorfendur og kringum 100 keppendur. Bergþóru gekk mjög vel og bætti tíman sinn í baksundi og skriðsundi um 3-4 sekúndur en "bara" um 1 sekúndu í bringusundi sem er í raun hennar sterkasta grein. Þar sem bringusundið er ávalt fyrsta keppnisgreinin og hún yfir-spennt, skemmir það mikið fyrir henni. Það er svolítið fyndið að sjá hana rétt áður en hún fer uppá start-blokkina, hún getur ekki verið kjurr, hoppar og læti. Eftir fyrsta sundið er hún síðan orðin róleg og einbeitt. Ég veit að hún getur betur í bringunni vegna þess að stelpa sem hún er að æfa með er ávalt á eftir henni í keppni á æfingum, en er svo með betri tíma en hún á sundmótum. Eftir mótið fórum við og sóttum Svövu á kóræfingu og fórum í bíltúr út í sveit. Á sunnudagsmorguninn var einnig vaknað klukkan 7 of farið á brautarstöðina hér í Leeds þar sem 15 aðrar skátastelpur biðu. Flokkurinn fór síðan til
Hér má sjá tvær vinkonur; Frankie og Bergþóru og yfirlýsingu sem Frankie skrifaði













