Síður

fimmtudagur, júlí 11, 2013

Chatsworth House

Dagur 7 Chatsworth house Við heimsóttum Chatsworth h House í brakandi blíðu. Fórum í guided tour sem kostaði 4 pund á haus vorum bara sex og leiðsögumaðurinn alltaf að vísa öðrum frá sem voru að reyna að hlusta " excuse me, this is a private tour". Húsið er hundgamalt og allt skreytt allavega sá hluti sem ferðamönnum er sýnt. hertoginn fyrsti útbjó staterooms fyrir kónginn sinn William sem svo aldrei kom og sjötti hertoginn bætti við heilli álmu fyrir partíhald, tók meðal annars á móti Victoríu drottningu og borðstofan var eins og þá. Það vakti athygli mína að gaflarnir voru á hvolfi en það var víst gert til að ermarnar á herramönnunum flæktust ekki í tindunum. Við tókum góðan göngutúr um garðana með cascade þar sem við sulluðum aðeins, villtumst mikið í völundarhúsinu þar sem Hulda og Les komust fyrst í miðjuna, höfðu reyndar farið áður og Gunnar síðastur. Versluðum svo skrýtna minjagripi en kannski ekki svo, fínustu garðyrkjuáhöld úr eðalstáli.
Chatsworth House
Svo dinner á pöbbnum en nú var kominn sunnudagur og bærinn tómur en kannski líka haft áhrif að úrslit Wimbelton stóðu yfir og allir bretar að fylgjast með sínum skoska manni Andy Murray vinna í fyrsta skipti í 77 ár.

Engin ummæli:

Skrifa ummæli