Leeds United
Hér sit ég út í garði og blogga, 23 gráðu hiti, logni
og glampandi sól. Það er 6. september og veðrið hefur verið alveg dásamlegt undanfarna daga. Við keyptum okkur nokkra garðstóla og borð fyrir nokkrum dögum og það kemur sér aldeilis vel núna. Bergþóra Sól er byrjuð í skólanum á fullu og líkar vel, ég hitti skólasystir hennar í dag sem tjáði mér að hún sæti við hliðina á Bergþóru, ansi skemmtileg stelpa með stríðniglampa í augunum og ansi örugg með sig, áreiðanlega góður félagsskapur þar á ferð. Eins er BS mjög ánægð með hádegismatinn sem henni stendur til boða, sem er mikil breyting frá því að hún kvartaði yfir vondum mat í Heiðaskóla þann tíma sem hún var þar.
Hér sit ég út í garði og blogga, 23 gráðu hiti, logni


Ég fór síðasta laugardag á minn fyrsta heimaleik Leeds United fc. á Elland Road.. Svava og Bergþóra Sól ákváðu að skutla mér, einum og hálfum tíma fyrir leik, sem átti að hefjast klukkan fjögur. Það tók ekki langan tíma fyrir mig að átta mig á því að ég hefði átt að fara um hádegi af stað þegar við sátum föst í umferðaröngþveiti þegar við nálguðumst leikvanginn. En allt gekk þetta vel og eftir að ég hafði keypt miða á dýrasta stað (28 pund), ekki fáanlegir aðrir miðar, þá var það einstök tilfinning að koma inn á leikfanginn nokkrum mínútum áður en flautað var til leiks og að heyra 26.800 manns syngja

Fótboltakveðjur
Gunnar Halldór
2 ummæli:
Sæll og blessaður frændi ;)
Mútter sendi mér slóðina ykkar, gaman að sjá hvað þið hafið það gott. BSG er ekkert smá fín í þessu skólaföt, vá hvað hún er orðin stór. Gangi ykkur vel. Bestu kveðjur.Ingibjörg
Bara muna að Manchester United eru bestir.
Gott og gaman að heyra og sjá að ykkur gengur og líður vel.
Bk
Gunni Sveins
Hvammstanga
Skrifa ummæli