Of mikið af kóngulóm, það er búin að vera vætusöm tíð og þá.... koma kóngulærnar inn, ég er nú ekki mikil skræfa þegar pöddur eru annars vegar en stórar hlaupandi ..... argh það er of mikið svona nálægt manni, bara í dag var ein í baðinu, ein í ferðatöskunni þar sem ég var að leita að hvítu blússunni sem ég ætla að vera í á tónleikunum, og ein bara á elhúsgólfinu. Vona að þetta sé einsdæmi.
Tónleikarnir já, ég fann svona sumarkór held ég hafi verið búin að segja frá því en allavega erum að æfa 'feel the spirit' safn af gospel sálum útsettum af John Rutter og the Crucifixion eftir John Stainer, bara gaman en hjálpi mér hvað ég er dottin úr æfingu, alger haugur leyfa mér að detta svona úr þjálfun en reyndar verið að dunda annað.
Fékk verkefnið til baka sem ég skilaði í júlí, fékk 63 bara fín einkunn.
Hæ til hamingju með einkunina og vinsamlegast vertu búin að útrýma þessum kvikindum áður en að við mætum á svæðið : )
SvaraEyðaGerður og co
Engin kvikindi í dag :)
SvaraEyða