Það er mikið að gerast í vinkonumálum Bergþóru Sólar þessa daganna. Virkilegir sviptivindar. Hún er aðalega að umgangast 5 "vinkonur" Frankie, Chelsea, Lauren, Tia og Shanell. Miklar og stórar yfirlýsingar eru hafðar um að "þessi" vinkona sé frábærlega skemmtileg og þær séu sko best friends for life, og það er farið út að leika, í sund, heim til hennar eða upp í herbergi. Stundum 4 saman en stundum bara ein. Eftir nokkra klukkutíma er hurðum skelt, kannski grátið pínu og sagt að "þessi" stelpa væri hundleiðinleg, hún hafi sko sagt og gert þetta og þetta, og hún ætlaði sko ekki að leika við hana "ever" hinar væru miklu skemtilegri. Morguninn eftir kemur "þessi" stelpa og bankar á hurðina hjá okkur og Bergþór fer til dyra og tekur á móti "þessari" stelpu með bros á vör. "Viltu koma út að leika" heyrir maður og svarið JÁ, bíddu meðan ég fer í skóna. Og í kvöld er stór stund því hún hefur fengið leyfi til að gista SLEEPOVER hjá Chelsea skólasystur og það eru stórar yfirlýsingar um að þær séu sko BEST FRIENDS
Hér má sjá tvær vinkonur; Frankie og Bergþóru og yfirlýsingu sem Frankie skrifaði
1 ummæli:
Þessi var góður, rifjar upp gamlar minningar. Man að mamma og pabbi gerðu oft grín að okkur þegar að við systurnar komum heim með yfirlýsingar yfir að við ætluðum sko aldrei í lífinu að leika við þessa og hina : )
Gerður
Skrifa ummæli