Grár raunverjuleikinn ræður núna, er alltaf að reyna að vinna finnst ekkert ganga en hausinn allavega smáfyllist. Svo dregur Gunnar mig í göngutúra, förum í Roundhay Park og þrömmum í kringum vatnið.
Nei það er ekki rétt að segja að ég sé alltaf að vinna, er nefnilega bæði komin í söngtíma og kór í Leeds College of Music, þeir eru með svona outreach department fyrir gamlingja eins og mig. Kennarinn minn er þrælhress, mjög ánægð með mig segir að mér hafi verið kennt vel á Íslandi og mér finnst gott að finna að ég hef fáu gleymt.
Hæ hæ bara að kvitta fyrir innlitið;) Til hamingju með barnabarnið! Kær kveðja Kolla vinkona Möggu
SvaraEyða