Síður

sunnudagur, mars 30, 2008

Stupid dad!!!
Fór með Bergþóru Sól á sundæfingu í dag. Sunnudags-æfingin byrjar ávalt klukkan 5 eftir hádegi. Bergþóra fór niður til að fara á æfinguna, en ég fór inná foreldrasvæðið, heilsaði Marteini hinum skoska og leit út í laug og spurði hann forviða "Hva, hvers vegna er æfingin byrjuð" og um leið og hann sagði við mig "Gunnar, did you drink to much in Denmark" með þessum frábæra skoska framburði, þá áttaði ég mig á því að búið var að flýta klukkunni um einn tíma. Allir foreldrarnir horfðu á mig og brostu, and I felt so stupid................................og Bergþóra skammaði mig heil ósköp............ auðvitað átti ég að vita þetta með; Daylight Saving Time.
En litla fjölskyldan á Stanmore Grove hafði semsagt vetrartíma til klukkan 18:00 í dag. En við erum hér með komin á sumartíma.
Danmerkurferð

Jæja þá erum við komin heim eftir þrælskemmtilega Danmerkurferð svona okkur til minnis þá var dagskráin einhvernvegin svona : (myndir á Picasa hér við hliðina)

15. Laugardagur Heimsókn til Huldu ofnbakaður fiskur og spilað Barna Trivial, strákarnir komnir til Horsens
16. sunnudagur farið í skip Dana Sirena í Harwich, hlaðborð
17. mánudagur vöknum sjóveikar 10 vindstig, komið til Esbjerg keyrt til Horsens, mangókjúklíngur hjá Bjarti
18. þriðjudagur Jón, Gerður og Skapti koma til Horsens, grillaðar nauta og svínasteikur, drukkið pínupons og talað óhóflega, komst að því að útlend kreditkort eru ekki velkomin í Danmörku
19. Miðvikudagur Farið í bæinn fyrsti í pulsu, keyptir skór og fleirra, McDonalds heimsóttur og spilað eitt Catan
20. Skírdagur Heimsóttum Slottet, fangelsið í Horsens keyrðum út í Juelsminde og 2 í pulsu, komumst að því að það er enn vetur í Danmörku. Fórum á Bones og fengum frábær rif og Bergþóra fékk ofurkók. Strákarnir voru sendir niður í Mosa eftir ýmsu og villtust agalega, keyrðu út úr bænum á alla vegu og fengu viðurnefnið Brödrene Lost....
21. Föstudagurinn Langi heimsóttum sundlaugina í Horsens, alveg dásamlegt að liggja í heitum potti og slaka vel á í gufu og sauna. Matarboð hjá Bjarti, nautafille og alles, drukkum oggupons og spiluðum smá og grettukeppni, úrslit tilkynnt síðar
22. Laugardagur, Pétur keyrði með Jón og mig ti Boager þar sem Jón varð eftir í heimsókn hjá Almari kunningja sínum, syni Huldu frænku Erlu vinkonu, þau reka þar skólabúðir lengst út við sjó svo þeir gátu ekki gert margt af sér þar :)
23. Páskasunnudagur, Nói Síríus í rúmið og svo brunað á stað í Randers Regnskov, frábær hitabeltisdýragarður í kúlulaga gróðurhúsum, dýrin ganga mörg villt í kúlunum svo nálægðin við þau er mikil, það pissaði á mig smáapi og ég fékk á mig risastóran laufskurðar maur ............. mæli með þessu, lögðum ekki í að fara í Lególand þar sem hitastigið var sko ekki hátt, en eftir enn eina veisluna hjá Bjarti og Gerði, dásamleg lambalæri þá fórum við Pétur í snjóhríð og ófærð á slökum dekkjum að sækja Jón úr lestinni til Kolding, 40 mínútna akstur sem tók 1 klst og 40 mínútur í röð sem silaðist á 40 km /klst. Sem betur fer var snjórinn farinn af veginum á bakaleiðinni svo ferðin gekk betur þá.
24. 2. í Páskum Jón og Gerður fara til Kaupmannahafnar, við skreppum í bæinn 3. í pulsu, erum löt hjá Bjarti, kjöftum og pöntum take-away.
25. þriðjudagur Jón og Pétur fara eldsnemma í lestina og drífa sig heim, við fórum með stelpunum í sund og svo í Mosann að borða soðna ýsu.
26. miðvikudagur skreppum í bæinn og versluðum helling enda Dönsk tíska mér meira að skapi en ensk, allavega ennþá :) Það er líka eitthvað svo notalegt við Danmörku og ég bjóst alltaf við þegar fólkið opnaði munninn að það færi bara að tala íslensku, samt var ég alveg farin að bjarga mér á dönsku eftir að hafa ruglað öllu saman fyrstu dagana og notða þrjú tungumál í einni setningu.
27. fimmtudagur, keyrum til Esbjerg og í skip, Esbjerg er mjög viðkunnanlegur bær og virðist stærri miðbær en Horsens, fengum okkur kaffi og það er sko eitt sem við eigum ekki eftir að sakna og það er verðlagið, ekki skánar það að gengið skuli vera svona út úr kú og grey íslensku tekjurnar mínar urðu mikið minni á smá stundu.
28. föstudagur mikið vorum við Bergþóra ánægðar að veðrið var gott og engin sjóveiki að trufla okkur. Keyrðum svo til Colchester þar sem Gunnar vilid finna staðinn þar sem þeir lágu yfir jólin 1981, fundum hann en mikið breyttan og skipaumferð þar nú engin og hafnarsvæðið meira og minna farið og búið að byggja Tesco og blokkir ! Lentum í leiðindateppum svo á leiðinni heim og komum ekki í kuldahúsið fyrr en um kvöldið.

Gunnari tókst að brjóta gleraugun sín og verða hálf sjónlaus í Danmark, en er núna búinn að panta tíma hjá sjónmælingakonu hjá Spectsavers.

Jæja nú verður bara lifað á vatni og grænmeti á næstunni og beðið eftir vorinu sem vonandi er á næsta leyti kv. SVava

mánudagur, mars 24, 2008

föstudagur, mars 21, 2008

Kveðja frá Danmark

Við erum núna í fríi í Danmörku, við sigldum með ferju frá Harwich til Esbjerg fengum 10 vindstig og við Bergþóra urðum sjóveikar. Jón og Pétur komu líka, flugu á Kaupmannahöfn og tóku lestina til Horsens.Við heimsækjum Bjart bróður og allt hans fólk og hunda en gistum í húsi sem við fáum lánað frá íslenskri vinkonu Röggu henni Hafdísi Hill úr Sandgerði.
Jón og Gerður eru hér lika með Skapta en María er í Svíþjóð að keppa í körfbolta. Erum búin að skoða okkur um, versla, rúnta og borða góðan mat.

fimmtudagur, mars 13, 2008

Mikado - áhugamanna ópera
Við skelltum okkur í gær að sjá óperuna Mikado eftir Gilbert og Sullivan, flutta af áhugamönnum, nemendum í háskólanum. Það var bara gaman, krakkarnir höfðu greinilega ferlega gaman að þessu, stelpurnar voru miklu betri söngvarar en strákarnir, og bara fyndið þegar ljósamaðurinn slökkti á ljósunum á sviðinu í miðju atriði og þau gengu á mikrafóninn ! Örugglega mikið mál að koma svona saman og vera líka að læra.

miðvikudagur, mars 12, 2008

Ísland og einkunnir

Það er oft mjög fyndið að vera íslendingur í útlöndum eða það finnst mér allavega. Ég var í dag að ræða við einn kennarann minn, þeir vilja alltaf vera að ræða Ísland og finnst það fáránlega lítið, t.d. vorum við að ræða einkaskóla, jú ég hélt þeir væru eitthvað 5 -1 0 á Íslandi, þá hló hann og sagði að það væru líklega 5 í næsta nágrenni. Ekkert skrýtið svo sem við það í búafjöldi Leeds með úthverfum er um 800.000. Þeir eru líka sannfærðir um að ég þekki meirhluta kennara á íslandi, ég þekki reynar marga en ekki alla 4-5000 sem grunnskólakennarar eru núna.
Eina sem er líklega stórt á Íslandi er landið sjálft, þar búa 3 á ferkílómetra en 246 í Bretlandi og 127 í Danmörku. Ef þið viljið vita meira er listinn hér.
Já ég er búin að fá einkunnir fyrir fyrri önnina, hér eru þær á skalanum 0 -90, þarf 50 til að ljúka, úr fjórum verkefnum fékk ég 56, 62, 67, og 74 svo út úr kúrsunum tveimur er þetta 60 og 69 sem er bæði á skalanum Merit sem þykir víst býsna gott en næst skal stefnt á yfir 70 sem heitir þá distinction. Einkunnir yfir 80 eru skilst mér mjög sjaldséðar. En allavega ef ég held svona áfram má vera að ég skelli mér í PhD nám eða EdD, sem er styttra en samt doktorsnám, allt í gerjun ennþá........
Það sem er framunda hjá okkur er;
Þegar við komum heim, eftir Danmerkurferðina sem verður frá 16 til 28 mars, fer Bergþóra Sól í sundþjálfunarbúðir í viku tíma hér í Leeds, frá 31 mars til 4 apríl, þar sem hver dagur verður tileinkaður ákveðnu sundi, skrið, bak, bringu og flug-sundi. Einn dagur er undirlagður "turns and starts". Síðan er hún bókuð á sundmót 12 apríl. Eins er búið að kaupa miða á Svan Lake með English National Ballet, þegar Dóra systir verður hjá okkur 5 apríl, en hún kemur 4 apríl og verður í 10 daga. Eins er búið að kaupa miða á Amy Macdonald 16 maí þegar Dóri og Sif koma til okkar. Þannig að okkur ætti ekki að leiðast vorið í Leeds.

þriðjudagur, mars 11, 2008


Leonard Cohen - Ég ætla - Einhverjir með?
Þessi snillingur verður með tónleika í Manchester í sumar;
17-Jun-08 Manchester, UK - Opera House
18-Jun-08 Manchester, UK - Opera House
19-Jun-08 Manchester, UK - Opera House

Maður bara getur ekki sleppt svona tækifæri, ég misti af honum í Ósló 1976, vegna þess að ég var of seinn að kaupa mið og líka þegar hann kom á Listahátíð fyrir nokkrum árum. Svo núna bara verð ég að kaupa miða. Hlakkkkkkkkkkkkkkkkkkkkkkka svo mikið til..............

sunnudagur, mars 09, 2008

Vísindi
Á hverjum fimmtudegi eftir skóla þá hafa Svava og Bergþóra Sól verið á námskeiði sem er í boð skólans ásamt foreldrum og börnum sem það vilja. Þetta heitir Mad Science og ýmislegt fróðlegt og skemmtilegt kennt þar. Síðast var verið að kenna hvernig það er að vinna fyrir geimfara í þyngdarleysi út í geimnum. Á myndinni sjáið þið Bergþóru og Tia, bekkjarsystir hennar, í einu verkefninu...........

þriðjudagur, mars 04, 2008


Heimasíðugerð
Einn af kúrsunum sem Svava situr er um heimasíðugerð. Hún skveraði því einni heimasíðu upp sem fjallar um Ísland. Hér er síðan; http://www.personal.leeds.ac.uk/~ed07sp/index.htm

sunnudagur, mars 02, 2008

Grettukeppni framhald
Magga er búin að senda sitt framlag í næstu umferð keppninnar. Spurning hvort það sé dómbært, hún svona öll tilhöfð á móti okkur sem erum eins og útburðir miðað við hana. En dómnemd hefur ákveðið að myndin "grettan" sé gjaldgeng vegna hins "geggjaða looks", svona horror movie effect" sem myndin lýsir vel. Svo núna bíðum við eftir framlagi t.d. Gerðar, Huldu, Bjarts, Iðunnar og maka þeirra, barna þeirra og bara allra. Allir hjartanlega velkomnir með framlag: Vinsamlegast senda myndir á svavap@mitt.is . og koma svo,,,,,,,, allir vera með.....................