Síður

mánudagur, febrúar 11, 2008

Árinu eldri og alltaf jafn kát :) 24 eða 42

Nú um helgina skall á mig eitt árið enn, ekki það að ég finni mikið fyrir þeim. Tók svona próf á Facebook "What is your real age" og þá kom í ljós 23 ára, svo Sandhya sagði að nú hefði ég orðið 24 ára svo við höldum því bara svona á milli okkar að það er víst á hinn veginn.
Hulda og Les komu á föstudaginn, ákváðu að taka sér frí frá því að kaupa húsgögn og fagna afmælum með okkur, því jú Les og ég eigum sama afmælisdag.
Við Hulda græjuðum heita rétt og alles á laugardaginn svo komu nokkrar pæjur í partí, ég hafði keypt nýtt spil í tilefni dagsins, The Big Taboo, og Articulate, spiluðum þau og skemmtum okkur frábærlega. Fékk fullt af kveðjum og pökkum takk fyrir það allt.
Svo kíktum við í bæinn á sunnudag með strætó í sól. Sjá myndir hér við hliðina.
Takk fyrir djúserinn, komuna og hjálpina Hulda og Les

2 ummæli:

  1. aftur til hamingju langaði bara að segja að þetta er alveg stórglæsileg terta og mig hlakkar mikið til að bragða á henni...Mmmmmmmm og þetta er glæsileg armband.

    SvaraEyða
  2. Frábært til lukku, ég á þá stórafmæli í des 20 ára (af því að ég er 4 árum yngri en þú)
    Við í Fríðunum þurfum endilega að skella okkur i svona reiknivél : )
    GP

    SvaraEyða